136. löggjafarþing — 32. fundur,  20. nóv. 2008.

fjárhagsleg fyrirgreiðsla hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

161. mál
[17:47]
Horfa

Kolbrún Halldórsdóttir (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er fengur að nýjum þingmanni. Hv. þm. Eygló Harðardóttir er vel að sér í atvinnumálum og hún á eftir að verða mjög liðtæk í umræðum um þau mál. Ég held, út frá því sem hún sagði hér, að við séum sammála um mjög margt. Nýsköpun í orkumálum er eitt af því sem ríkisstjórnin hefur dregið lappirnar í. Við höfum ótal tækifæri. Ég er sammála hv. þingmanni um ákveðna þætti af þeim sem hún fjallaði hér um en ekki endilega um aðra þætti.

Ég segi bara: Við bíðum betri tíma eftir að ræða þetta ofan í kjölinn en ég sé það á öllu að hv. þingmaður á eftir að verða góður liðsmaður í því að finna hugmyndir eða vinna þingmál í tengslum við atvinnuskapandi aðgerðir á Íslandi og eflingu íslensks atvinnulífs.