fjárhagsleg fyrirgreiðsla hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Virðulegi forseti. Hv. þm. Ármann Kr. Ólafsson dró að mínu viti í mjög góðri ræðu að mestu leyti réttar ályktanir af gefnum forsendum. En það voru nokkrir hlutir sem mér finnst eðlilegt að spyrja um og velta fyrir mér. Það er í fyrsta lagi þegar hann fjallar um ábyrgð Framsóknarflokksins sem hann vildi gera að sérstöku umtalsefni vegna einkavæðingar banka og vaxtar bankanna. Þá vil ég spyrja þingmanninn að því hvort hann telji að þar hafi verið mörkuð röng stefna eða rétt stefna. Var það röng stefna sem ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins stóðu fyrir, að einkavæða bankana, og var það röng stefna að heimila að þessar stofnanir gætu vaxið? Ef menn flytja svona mál er eðlilegt að þeir geri grein fyrir þessu.
Í annan stað: Liggur ekki fyrir að einmitt þessi vöxtur bankakerfisins færði þjóðinni að jafnaði um það bil 400 milljarða í aukinni landsframleiðslu og þar af leiðandi verulega aukningu skatttekna í ríkissjóð? Var þá ekki hinn áhættusækni aðili og áhættusæknasti, var það ekki ríkissjóður undir fjármálastjórn Sjálfstæðisflokksins sem þá væntanlega gæti borið höfuðábyrgð á því sem um er að ræða?
Hv. þingmaður talaði um Lehman Brothers. Telur hann að ástæða hrunsins hér og efnahagsþrenginganna sé sem sagt hrun Lehman Brothers og það að lánalínur lokuðust og að lánveitandi til þrautavara hafi ekki verið nógu öflugur?