fjárhagsleg fyrirgreiðsla hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Hæstv. forseti. Þetta voru allnokkrar spurningar varðandi ábyrgð Framsóknarflokksins, hvort stefnan hafi verið rétt eða röng þegar bankarnir voru seldir og hvort það hafi verið rétt eða rangt að leyfa þeim að vaxa eins og raun bar vitni.
Það flokkast nú kannski undir það að vera vitur eftir á en ég spurði sjálfan mig stundum að því af hverju við, sem sagt ríkissjóður, héldum ekki eftir einhverjum hluta í bönkunum eins og við höfum séð gert víða í kringum okkur og m.a. á Norðurlöndunum eftir að þeir höfðu lent í sínum hremmingum. Þegar þeir seldu bankana aftur héldu þeir eftir ákveðnum hlut. Ég held að það hefði verið skynsamlegt.
Hvað varðar vöxt bankanna veit ég ekki hvort við hefðum átt að stoppa eftirlitsstofnanirnar af eitthvað fyrr. En ég verð þó að segja eins og er að þegar maður rekur fyrirtæki hlýtur það að vera númer eitt, tvö og þrjú að reka það þannig að maður geti verið nokkuð öruggur um að stýra því í gegnum svona hremmingar. Það hlýtur að vera hluti af því.
Ég held að bankarnir hafi vaxið allt of mikið en ég verð líka að segja að það var á ábyrgð fyrirtækjanna. Þeir voru í þessu umhverfi, þeir vissu hvað bakhjarlinn var sterkur. Hann var nú ekki mjög sterkur enda er hér lítil þjóð í litlu landi. Síðan er gríðarleg áhætta af þessum gjaldmiðli.
Þetta færði ríkissjóði miklar tekjur, það er ekki spurning, en ég held að fjármálaráðherrann geti ekki borið ábyrgð á því að bankarnir voru reknir eins og gert var. Ég verð að segja eins og er að þegar búið er að lyfta horninu á teppinu kemur mér sífellt meira á óvart hvernig þeir voru reknir. Maður verður sífellt meira hissa og ég held að hv. þingmaður verði það líka. En varðandi fall Lehman Brothers er það örugglega rétt hjá hv. þingmanni að bankarnir (Forseti hringir.) voru ekki nógu öflugir.