136. löggjafarþing — 32. fundur,  20. nóv. 2008.

fjárhagsleg fyrirgreiðsla hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

161. mál
[18:40]
Horfa

Jón Magnússon (Fl) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta var sérkennilegt svar hjá hv. þm. Ragnheiði Ríkharðsdóttur. Hún treystir flokkunum. Flokkarnir eru nú einu sinni ekkert merkilegri en fólkið sem í þeim er og þeir standa fyrir ákveðna stefnu og ákveðin sjónarmið. Nú liggur fyrir að hæstv. forsætisráðherra hefur að óbreyttu lýst yfir stuðningi við bankastjórn Seðlabankans. Miðað við þær yfirlýsingar liggur fyrir að eina ferðina enn á að leggja af stað undir handarjaðri og stjórn núverandi bankastjórnar Seðlabanka Íslands.

Miðað við þær áhyggjur og þau sjónarmið sem komu fram hjá hv. þingmanni — hún lýsti yfir algjöru vantrausti á Seðlabanka Íslands til þess að fara með þau vandasömu mál sem um væri að ræða — er ekki hægt að svara svona. Að treysta flokkunum, það eru málsvarar flokkanna í ríkisstjórn — hæstv. forsætisráðherra fyrir Sjálfstæðisflokkinn, utanríkisráðherra fyrir Samfylkinguna og aðrir ráðherrar — sem margir hverjir hafa kvatt sér hljóðs og talað. Þeir hafa lýst því yfir að leggja eigi af stað í fleytingu krónunnar að bankastjórn Seðlabanka Íslands óbreyttri, þ.e. með sömu aðilum og hv. þingmaður sagðist ekki geta treyst.

Ég ítreka spurningu mína. Ekki er hægt að segja að viðkomandi treysti flokkunum, þeir eru bara skjaldarmerki og við erum ekki í skjaldarmerkjafræðum. Við erum einfaldlega að tala um stefnumörkun, við erum að tala um raunhæf úrlausnarefni. Miðað við þau raunhæfu úrlausnarefni sem hv. þingmaður lýsti er hún andvíg stefnu ríkisstjórnarinnar hvað þetta varðar vegna þess að hún treystir ekki Seðlabanka Íslands. Ég spyr því: Er hv. þingmaður í stjórnarandstöðu að þeim forsendum gefnum að (Forseti hringir.) bankastjórn Seðlabanka Íslands verði óbreytt?