rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008.
Virðulegi forseti. Það hefur eðlilega verið mikill þrýstingur í samfélaginu eftir bankahrunið sem hér varð á að farið verði í öflugt og viðamikið rannsóknarstarf, farið vel yfir það sem gerðist, skoðað hverja við þurfum að sækja til ábyrgðar og hvað við getum lært af þeirri atburðarás sem hér hefur orðið.
Það eru margir í okkar samfélagi sem eiga um sárt að binda eftir þetta. Það er fólk sem misst hefur atvinnu sína sem er eitthvað það versta sem hent getur einstaklinga. Það er fólk sem jafnvel hefur misst lífssparnað sinn og þar með ákveðinn grundvöll fyrir framtíðarstöðu sína. Það er eðlilegt að við þær aðstæður myndist mikill þrýstingur á að farið sé vel yfir aðdraganda málsins og afleiðingar.
Áfall samfélagsins er líka mikið. Við erum búin að missa gríðarlegar skatttekjur af öflugri bankastarfsemi í landinu. Við erum búin að missa öflug störf sem gáfust okkar unga fólki sem komið hefur vel menntað út á vinnumarkaðinn á undanförnum árum, ekki bara hér á landi heldur nánast úti um allan heim og kannski sérstaklega í nágrannalöndunum. Það er því mikið áfall sem á okkur hefur dunið og sjálfsagt að fara vel ofan í atburðarásina, gerð er krafa um rannsókn.
Það hefur farið lítið fyrir umræðu um þá rannsókn sem sett var af stað strax og þessar aðstæður sköpuðust. Það er ástæða til þess að nefna að strax voru settar inn í bankana virtar endurskoðunarskrifstofur til þess að fara ofan í allar þær hreyfingar og það sem gerðist í starfsemi þessara fjármálastofnana síðustu vikurnar áður en íslenska ríkið yfirtók starfsemi þeirra.
Forsætisráðherra nefndi mjög snemma í þessu ferli að nauðsynlegt yrði að fara mjög ítarlega yfir hluti og hann talaði um hvítbók. Segja má að með því að leggja fram þetta frumvarp til laga, og reyndar einnig með því frumvarpi sem dómsmálaráðherra lagði fram í síðustu viku um sérstakt saksóknaraembætti til þess að fara í rannsókn á mögulegu misferli, með þessum frumvörpum, sé að hefjast seinni hálfleikur í þessu máli hjá okkur.
Það ber að fagna mjög framkomu þessa frumvarps. Búið er að bíða eftir frumvarpinu og mikill þrýstingur hefur verið á að koma fram með það. En við sjáum að þegar forseti Alþingis, hv. þm. Sturla Böðvarsson, leggur fram þetta frumvarp er búið að leggja í það gríðarlega mikla vinnu. Þegar svona stór áföll koma er svo sem enginn farvegur tilbúinn eða neitt klæðskerasaumað fyrir hendi til þess að bregðast við því. Við það verður að miða öll okkar viðbrögð.
En það er mikið fagnaðarefni að afrakstur þessarar miklu vinnu virðulegs forseta og formanna þingflokkanna skuli vera settur fram. Það er sérstakt fagnaðarefni að náðst skuli hafa um það breið samstaða hér á hinu háa Alþingi. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir allan framgang málsins að svo sé vegna þess að það stendur til að fara í mjög ítarlega rannsókn þar sem ekkert verður undanskilið.
Frumvarpið vekur vissulega traust þegar það er skoðað og þótt það byrji á þeim umdeildu orðum sem hér hafa verið nefnd, að rannsóknarnefnd á vegum Alþingis skuli leita sannleikans um aðdraganda og orsök falls íslensku bankanna 2008 og tengdra atburða, felst í þeim orðum hugmyndin um að hér verði um mjög víðtæka og opna rannsókn að ræða. Öllum er ómögulegt að finna hinn eina sannleika og hann er kannski ekki til en þetta orð, sannleikur, er notað þarna til að leggja áherslu á að hér verður ekkert undan skilið og farið verður vel yfir allar aðstæður málsins.
Það vekur mér traust þegar ég les frumvarpið yfir að sjá starfsáætlunina. Í II. kafla er talað um skipan rannsóknarnefndarinnar þar sem einn dómari Hæstaréttar, sem er valinn af dómurum réttarins, skuli vera formaður nefndarinnar. Þá kemur umboðsmaður Alþingis að málinu og síðan verður vel menntaður sérfræðingur á þessu sviði þriðji maðurinn í nefndinni.
Sú skipan mála á að hefja nefndina yfir alla gagnrýni. Hún á að setja það traust á málið strax í byrjun að allir geti verið vissir um að hér verður engu undan skotið. Lögð er á það áhersla að nefndin geti leitað sérfræðilegrar aðstoðar bæði innlendra og erlendra aðila við mat á einstökum þáttum rannsóknarinnar.
Það er enginn sem lætur sér detta annað í hug en að við verðum að leita út fyrir landsteinana til þess að sækja bakland í þessa rannsókn, svo umfangsmikil á hún að verða. Það er mjög mikilvægt að þótt ekki hafi farið fram kostnaðargreining á þessu frumvarpi, sem nánast er útilokað að gera, að menn átti sig á því að hér verður engu til sparað. Um er að ræða það mikið tjón sem þegar er orðið að kostnaður við rannsóknina, eins mikilvæg og hún er, verður smávægilegur í því samhengi.
Í III. kafla frumvarpsins er farið yfir rannsóknarheimildir nefndarinnar. Þar er öllum sem að málum koma, hvort sem það eru einstaklingar, stofnanir eða lögaðilar, skylt að verða við kröfu rannsóknarnefndarinnar um að láta í té upplýsingar, gögn og skýringar sem hún fer fram á. Lögð er á það þung áhersla og ítrekað að hér skuli ekkert undanskilið. Það er skylt að verða við kröfunni að veita upplýsingar þótt þær séu háðar þagnarskyldu. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt atriði.
Það tekur til allra málaflokka, til að mynda þeirra sem fjalla um öryggi ríkisins og eins fundargerða ríkisstjórna og ráðherrafunda og fundargerða nefnda Alþingis. Það ítrekar þann mikilvæga þátt að hér á að vera mikið gagnsæi og allt á að vera uppi á borðum, ekkert undanskilið.
Stjórnvöld eru líka samkvæmt frumvarpinu bundin til þess að veita nefndinni alla þá nauðsynlegu aðstoð sem hún þarf á að halda við störf sín. Það er hverjum sem kallaður er fyrir nefndina skylt að mæta til hennar.
Í 12. gr. frumvarpsins er talað um þá vernd sem einstaklingar fá ef þeir hafa frumkvæðið að því að bjóða eða láta nefndinni í té upplýsingar eða gögn sem tengjast opinberri stofnun eða fyrirtæki, móður- eða dótturfyrirtæki þess fyrirtækis sem það er í viðskiptum við eða stjórnendum þeirra og óska að þeir sæti ekki ákæru þótt upplýsingar og gögnin leiði líkur að refsiverðu broti þeirra sjálfra.
Ég þekki ekki hvort þetta er einsdæmi í íslenskri löggjöf en hér er a.m.k. um að ræða atriði sem getur orðið mjög mikilvægt í þessum málarekstri og getur skilað okkur upplýsingum sem annars mundu ekki rata upp á yfirborðið.
Nefndinni er síðan skylt, ef grunur vaknar við rannsókn hennar um að refsiverð háttsemi hafi átt sér stað sem er alvarleg að senda það áfram til ríkissaksóknara og þá er það væntanlega mál sem fer til sérstaks saksóknaraembættis sem á að fjalla um þessi mál.
Það er mikilvægt að við gerum okkur grein fyrir þeim tímamörkum sem eru í þessu. Stefnt er að því að nefndin skili skýrslu sinni eigi síðar en 1. nóvember 2009. Við verðum að vera raunsæ í þeim kröfum sem við gerum um tímamörk í þessu. Þótt öllum sé ljóst að mjög mikilvægt er að þessari vinnu ljúki sem fyrst verður að vanda til hennar og gefa þessu þann tíma sem þarf. Gert er ráð fyrir að nefndin geti í millitíðinni skilað sérstakri skýrslu eða upplýsingum til þingsins og það munu menn örugglega notfæra sér.
Í umræðunni í dag hefur margt fróðlegt komið fram en eitt vil ég þó nefna sem mér finnst vera tiltölulega ábyrgðarlaus málflutningur við þessar aðstæður. Það er þegar nefnd hefur verið aðild að Evrópusambandinu, ef við hefðum verið aðilar að því hefði þetta ekki gerst. Svona yfirlýsingar eru mikil einföldun og engan veginn rökstuddar nægilega til þess að geta talist trúverðugar.
Hér er talað um aðild að Evrópusambandinu og gjaldmiðilsumræðuna. Gjaldmiðilsumræðan er allt annað mál og þótt við gengjum í Evrópusambandið er löng leið í að við gætum tekið upp evru sem gjaldmiðil. Menn geta horft til annarra leiða í því, t.d. að taka hér upp annan gjaldmiðil og verið sammála um það. En það er ekki rétt að draga inn í þessa umræðu að allt hefði farið öðruvísi ef við hefðum verið í Evrópusambandinu. Við getum bara horft til þeirra þjóða í Evrópusambandinu sem eiga við mikil vandamál að stríða, þar hefur Evrópubankinn ekki komið sem sá bakhjarl sem hér er talað um og bankar hafa verið að fara á hausinn í þessum löndum eins og hér.
Það er mikill galli á þeim reglum Evrópusambandsins sem leyfa alveg óbundinn flutning á fjármagni með opnun fyrirtækja og það eru engin landamæri. En þegar kemur að tryggingunni og ábyrgð eru allt í einu komin landamæri. Þessum reglum hlýtur að verða breytt og það er kannski sá lærdómur sem við munum draga af þessu.
Vegna þess að fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott — þótt ég sé ekki að mæla bót þeirri stöðu sem er hér uppi — verður dreginn af þessu mikill lærdómur sem við og komandi kynslóðir munum eiga til þess að forðast í framtíðinni. Það er ekki bundið við Ísland. Það er ekki eingöngu bundið við efnahagsumhverfi okkar eða land. Það er bundið við efnahagsumhverfi heimsins og bankastarfsemi. Það eiga alveg örugglega eftir að verða miklar breytingar á þeirri starfsemi um allan heim.
Hér heima breytir þetta í raun öllu samfélaginu. Hér eftir verður gildismatið allt annað. Hér verður miklu meiri virðing borin fyrir eignum og skuldum. Hér gerum við okkur grein fyrir því hversu mikilvægur sparnaður er fyrir fjölskyldur og samfélög og hvaða grunn það byggir fyrir framtíðaruppbyggingu og þá vörn sem það felur í sér þegar áföll sem þessi dynja yfir.
Við vorum að einhverju leyti búin að gleyma uppruna okkar, á hverju við byggjum þetta samfélag. Ég held að við gerum okkur betur grein fyrir því núna en nokkru sinni áður á hverju við þurfum að byggja hér, á hvað við þurfum að treysta. Við erum mjög rík þjóð í mannauði. Við eigum duglegt og atorkusamt fólk og við höfum aldrei átt eins stóran hóp af vel menntuðu fólki og í dag. Við eigum auðlindir sem aðrar þjóðir geta ekki státað af, auðlindir til lands og sjávar sem verða grunnurinn að þeirri uppbyggingu sem við munum nú fara í í þessum seinni hálfleik. Það er þar sem við höfum tækifæri til að sækja fram og koma þessu samfélagi á rétt plan. Við náum því aldrei, virðulegi forseti, að verða sama samfélag með sama gildismat og við vorum áður en þessi áföll dundu á okkur. En markmiðið með þessari rannsókn og þeim aðgerðum (Forseti hringir.) sem við grípum til er auðvitað að skapa betra samfélag.