136. löggjafarþing — 37. fundur,  27. nóv. 2008.

samningar um ábyrgð ríkissjóðs vegna innstæðna í útibúum íslenskra viðskiptabanka á EES-svæðinu.

177. mál
[18:03]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég talaði aldrei um linkind. Mér datt það ekki í hug. Mér datt ekki í hug annað en að hæstv. utanríkisráðherra hefði staðið sig bara mjög vel í þessari baráttu. Ég efast ekki um það. Allir Íslendingar stóðu sig vel í þessari baráttu, allir. Við urðum bara að gefast upp fyrir ofurefli. Það er það sem er. Við erum að gefast upp fyrir þessu Evrópusambandi. Það er það sem við erum að glíma við. Þá gerum við það bara.

Sjálfstæðisflokkurinn er ekkert að hlaupa frá ábyrgð. Ég held að ég hafi talað mjög ábyrgt í þessu máli. Ég er ekkert að hlaupa frá ábyrgðinni. Mér dettur það ekki í hug. Ég er á móti því að gefa svona galopna heimild eins og þingsályktunartillagan lítur út. En ef henni verður breytt þannig að bætt verði við þeirri setningu að samningurinn verði borinn undir Alþingi til samþykktar get ég alveg stutt það og mun styðja það heils hugar. Hæstv. utanríkisráðherra nýtur míns fulla trausts í þessari erfiðu baráttu við ofurefli og óbilgirni annarra þjóða.

Málið er það að embættismenn og stjórnmálamenn í Brussel og í Evrópu hafa engan skilning á vandamálum Íslands. Þeir hafa bara engan skilning, ekki frekar en Danir höfðu í mörg hundruð ár þegar við vorum í ríkjasambandi með þeim. Það voru ekki vondir menn, Danir. Þeir bara skildu ekki aðstæður á Íslandi. Og Íslendingum fækkaði og fækkaði, ekki vegna þess að þeir flyttu í burt. Þeir bara dóu. Það var ekki góð sambúð. Og ég hef ekki trú á því að embættismenn í Brussel hafi neitt meiri skilning á vandamálum Íslendinga í framtíðinni þó að við verðum smáhreppur í því stóra ríki.