gjaldeyrismál.
Virðulegi forseti. Ég tel engra aðgerða þörf til að auka tiltrú á ríkisstjórn Íslands, hún fékk 42 atkvæði í þinginu í traustsyfirlýsingu síðastliðinn mánudag vegna misráðins gönuhlaups hv. þingmanns og félaga hans í Framsóknarflokknum (BJJ: Óverðskuldað.) í óhugsaðri vantrauststillögu.
Það sem mér finnst standa upp úr þegar maður horfir á þetta mál er að Framsóknarflokkurinn, sem barði sér mjög á brjóst fyrir að taka þátt í að styðja við aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, skorast nú úr leik. Hann ætlar ekki að taka þátt í þeim aðgerðum sem eru nauðsynlegar. Með öðrum orðum, Framsóknarflokkurinn er að bila, hann bilar undir álagi. (Gripið fram í: Nei.) Hann er fínn þegar vindurinn er í bakið en (Gripið fram í.) þegar á móti blæs er Framsóknarflokkurinn ekki með. (Gripið fram í.) Ég hélt ekki að ég ætti eftir að segja þetta úr þessum ræðustól, virðulegi forseti, en maður veltir því fyrir sér hvort komin sé einhver ný tegund af ábyrgðarleysi í Framsóknarflokkinn núna eftir að skipt var um forustu. Ég hélt ekki að ég ætti eftir að segja það að maður væri farinn að sakna ábyrgrar forustu Guðna Ágústssonar. Það ber þá nýrra við.
Virðulegi forseti. Framsóknarmenn segja hér og hv. þm. Birkir Jón Jónsson að ekki hafi verið komið til móts við fulltrúa framsóknarmanna í nefndinni. Hv. þingmaður vissi að það lá mikið á að afgreiða þetta mál í nótt og það yrði að afgreiða það fyrir opnun markaða í morgun. Hann kom klukkan tíu mínútur fyrir tvö í nótt með lista upp á 17 gesti sem hann taldi algjörlega nauðsynlegt að yrðu kallaðir fyrir nefndina í nótt. (Gripið fram í.) Þá spyr maður sig: Var virkilega einhver vilji til að vinna að afgreiðslu málsins? Svar mitt er skýrt: Nei, Framsóknarflokkurinn (Forseti hringir.) bilaði þegar kom að afgreiðslu þessa máls.