136. löggjafarþing — 42. fundur,  4. des. 2008.

tollalög.

193. mál
[11:13]
Horfa

fjármálaráðherra (Árni M. Mathiesen) (S):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breyting á tollalögum og nokkrum öðrum lögum.

Með frumvarpi þessu er lagt til að landið verði gert að einu tollumdæmi með það að markmiði að einfalda skipulag tollgæslunnar og auka þannig samræmi, skilvirkni og árangur í tollframkvæmd.

Með nýjum tollalögum, nr. 80/2006, var tollumdæmum fækkað úr 26 í átta og var þá stigið mikilvægt skref í átt til einföldunar og hagræðingar á sviði tollamála. Í tengslum við endurskoðun þeirra laga voru ræddar ýmsar hugmyndir um frekari fækkun tollumdæma, jafnvel að landið yrði gert að einu tollumdæmi, en niðurstaðan varð sem fyrr segir sú að tollumdæmin yrðu átta í þeim áfanga.

Tollstjórinn í Reykjavík er í dag eini tollstjórinn sem heyrir undir fjármálaráðuneytið en það ráðuneyti fer með faglega yfirstjórn tollamála í landinu. Aðrir tollstjórar eru sýslumenn og lögreglustjórar sem heyra undir dómsmálaráðherra þó að þeir lúti faglegri yfirstjórn fjármálaráðherra í tollamálum. Þannig er fjárhagsleg og stjórnunarleg ábyrgð tollamála á hendi tveggja ráðuneyta í dag.

Annars staðar á Norðurlöndunum hefur tollembættum og tollumdæmum verið fækkað á undanförnum árum. Svíþjóð hefur verið eitt tollumdæmi frá 2004. Sama ár var tollumdæmum í Noregi fækkað úr tíu í sex. Í Finnlandi eru tollumdæmin fimm og í Danmörku eru þau átta talsins og er fyrirhugað að fækka þeim í sex árið 2009.

Með frumvarpi þessu er lagt til að skrefið verði stigið til fulls í því að fækka tollumdæmum og tollembættum. Með öðrum orðum, landið verði gert að einu umdæmi sem stjórnað sé af einu embætti, embætti tollstjóra, þó þannig að tollstjóri geti með samningum falið sýslumönnum og lögreglustjórum að annast tiltekna þætti tollframkvæmdar í umdæmum þeirra. Það fyrirkomulag mun stuðla að aukinni hagræðingu og einföldun í rekstri viðkomandi embætta, jafnframt því að auðvelda stefnumótun í tollamálum, skipulagningu tollframkvæmdar og alla áætlanagerð varðandi tollstarfsemina sjálfa. Þar með verður fagleg, fjárhagsleg og stjórnunarleg ábyrgð færð á eina hendi.

Embætti tollstjórans í Reykjavík hefur þegar ákveðna sérstöðu meðal tollembættanna samkvæmt gildandi lögum. Það er stærsta tollembættið, bæði með tilliti til umfangs tollstarfseminnar og starfsmannafjölda. Þá hefur það embætti þegar á hendi tiltekið miðlægt hlutverk í tollamálum, m.a. samræmingu tollframkvæmdar og rekstur rafræns tollafgreiðslukerfis. Því liggur beinast við að fela embætti tollstjórans í Reykjavík umsjá tollamála á landinu öllu eins og lagt er til í þessu frumvarpi. Jafnframt er lagt til að heiti embættis tollstjórans í Reykjavík verði breytt í embætti tollstjóra.

Ekki er gert ráð fyrir að breytingin hafi í för með sér að starfsmönnum tollyfirvalda á landsbyggðinni fækki enda verður verkefnum á sviði tollamála áfram sinnt þar eins og verið hefur. Við sameiningu tollumdæmanna undir einum hatti kunna einnig að skapast ýmsir möguleikar á tilflutningi verkefna frá höfuðborgarsvæðinu til starfsstöðva tollyfirvalda úti á landi.

Herra forseti. Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpi þessu verði vísað til hv. efnahags- og skattanefndar og til 2. umr. að lokinni þessari umræðu.