136. löggjafarþing — 42. fundur,  4. des. 2008.

vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. og virðisaukaskattur.

175. mál
[12:11]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og skattn. (Pétur H. Blöndal) (S):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., og lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, frá hv. meiri hluta efnahags- og skattanefndar. Það er að finna á þskj. 246.

Á þingskjalinu kemur fram hvaða gestir heimsóttu nefndina og þar er líka sagt að í frumvarpinu sé lagt til að heimilt verði að endurgreiða vörugjald og virðisaukaskatt af áður skráðum vélknúnum ökutækjum sem eru afskráð og flutt úr landi, eftir nánar greindum skilyrðum.

Þeir sem komu á fund nefndarinnar voru almennt sammála tilgangi frumvarpsins. Fram kom sú gagnrýni að gildistími þess væri of stuttur og kynni að valda óðagoti við útflutning auk þess sem sumir töldu að reglur frumvarpsins væru eðlilegar og ættu að gilda til frambúðar. Gerðar voru athugasemdir við afskriftaviðmið, fyrningarstuðul, er liggur til grundvallar útreikningi á endurgreiðslu og talið að það endurspeglaði ekki nægilega vel raunverulegt verðfall á bifreiðum. Einnig voru gagnrýnd tilmæli frumvarpsins um sérstaka ástandsskoðun tollstjóra og heimild til töku gjalds vegna hennar.

Meiri hlutinn bendir á að sú ráðstöfun sem í frumvarpinu felst er tímabundin og til komin vegna sérstakra aðstæðna í efnahagsmálum þjóðarinnar. Ætlunin er að auka möguleika eigenda bifreiða á að koma þeim í verð með tilheyrandi öflun gjaldeyristekna sem ætla má að verði varið til niðurgreiðslu skulda, enda tóku margir gengislán til bílakaupa. Hefur einnig verið vísað til þess að frumvarpið liðki fyrir endurnýjun íslenska bílaflotans og sé þar af leiðandi til hagsbóta fyrir umhverfið.

Meiri hlutinn leggur til að gildistími frumvarpsins verði lengdur til og með 31. desember 2009. Er það gert til samræmis við þá breytingu sem nefndin lagði til í tengslum við afgreiðslu laga nr. 132/2008 og um breytingu á lögum nr. 36/1978, um stimpilgjald.

Fram kom á fundum nefndarinnar að fyrningarstuðull frumvarpsins feli í sér að heimild til endurgreiðslu er ekki lengur til staðar fimm árum eftir nýskráningu ökutækis. Meiri hlutinn gerir ekki athugasemdir við það þar sem flest gengistryggð lán voru til kaupa á nýlegum bifreiðum.

Meiri hlutinn telur einnig rétt að hnykkja á því að áður en ráðist verður í innheimtu skoðunargjalds liggi skýrt fyrir hvernig útreikningi þess sé háttað og hvort þörf sé á slíku gjaldi en um innheimtu þess gildir heimildarákvæði.

Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:

Í stað orðanna „til 1. apríl 2009“ í 3. efnismgr. 1. og 2. gr. komi: til og með 31. desember 2009.

Hv. þingmenn Ögmundur Jónasson, Bjarni Benediktsson og Gunnar Svavarsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Grétar Mar Jónsson sat fund nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og gerir fyrirvara við álitið.

Undir nefndarálitið rita hv. þingmenn Pétur H. Blöndal, Ellert B. Schram, Birkir J. Jónsson, Lúðvík Bergvinsson og Rósa Guðbjartsdóttir.