náttúruverndaráætlun 2009–2013.
Frú forseti. Ég vil þakka sérstaklega fyrir þessa síðbúnu tillögu til þingsályktunar um náttúruverndaráætlun fyrir árin 2009–2013. Ekki er seinna vænna þegar lifir minna en mánuður af tímabilinu sem núverandi náttúruverndaráætlun var ætlað að taka til, enda kemur fram að vinna við gerð áætlunarinnar hafi verið tímafrekari en menn höfðu ætlað og því hafi skort á kynningu. Eins og hér segir, með leyfi forseta:
„Þessi vinna hefur tekið lengri tíma en áætlað var og hefur leitt til þess að ekki var svigrúm til þess að fara með tillögur að áætluninni í almennt kynningar- og athugasemdaferli, eins og kynnt hafði verið m.a. á umhverfisþingi í október 2007.“
Ég tel sérstaka ástæðu til að minna á umhverfisþingið 2007 og fyrirheitin sem þar voru gefin. Á þinginu var mjög gagnrýnt hversu lítill tími gafst til umræðna og hversu þröngur stakkur umræðum var almennt sniðinn á þinginu. Þess vegna var fyrirheit um frekari kynningu og athugasemdaferli við náttúruverndaráætlunina mjög mikilvægt og leitt að ekki skuli hafa náðst að uppfylla það. Tímaramminn sem nú er gefinn þegar fjórir dagar lifa af starfsáætlun þings fyrir jólahlé gefur augaleið að það færi gefst heldur ekki núna. Til þessa verður að horfa þegar áfram verður haldið við næstu 5 ára áætlun í samræmi við náttúruverndarlögin, því þar er af nógu að taka.
Mig langar til — vegna þess sem ég sagði um að vinnan við þetta hafi verið meiri en menn höfðu ætlað — að þakka sérstaklega fyrir mjög ítarlegan og góðan viðauka með lýsingum á þeim svæðum og tegundum plantna og dýra sem til stendur að friðlýsa og þar er verulega mikinn og góðan fróðleik að finna. Ég sakna þess helst að ekki eru ljósmyndir með í þessu ágæta fylgiskjali. Það hefði gert málið miklu aðgengilegra.
Á umhverfisþinginu sem ég nefndi voru gefin fyrirheit um að náttúruverndaráætlun fyrir árin 2009–2013, sem við ræðum hér, mundi taka til tiltekinna viðkvæmra svæða og náttúrufyrirbæra í hafinu umhverfis Ísland. Þar voru sérstaklega tilnefnd þau svæði þar sem vitað er um steinkóral og aðrar kóraltegundir sem teljast vera í hættu. Stöku svæði eru nú friðlýst undan suðausturströnd landsins en ljóst að þarna er gríðarlega mikið verk óunnið og ég sakna þess að sjá ekki — nú skal viðurkennt, frú forseti, að ég hef ekki haft mikið tóm til að kynna mér þingskjalið sem hér liggur fyrir en í fljótu bragði virðist mér ekkert um þetta fjallað í þingskjalinu að öðru leyti en því að á bls. 11 er því vísað inn í næsta tímabil, þ.e. 2014–2018. Þetta veldur mér verulegum vonbrigðum og ég tel einsýnt að umhverfisnefnd þingsins taki málið til skoðunar og athugi hvort ekki sé ástæða til að herða á og setja inn í náttúruverndaráætlunina — þótt það væri á árunum 2012 og 2013 — áætlun um verndun kóralsvæðanna.
Ég vil nota tækifærið til að rifja upp að nýlega hafa rannsóknir við strandsvæðin í Noregi sýnt fram á að gildi kóralsvæða fyrir lífmagn í hafinu og sem uppeldisstöðvar seiða, hvort heldur er nytjafiska eða fæðu fyrir nytjafiska, er gríðarlega mikið og hefur verið stórlega vanmetið til þessa. Við þekkjum öll hörmungarmyndirnar af eyðilögðum kóralsvæðum í Norðursjó en að sama skapi eru myndir af lifandi kaldkóralsvæðum fallegar og sýna ótrúlega mikla lífauðgi og ég vil skora á hv. umhverfisnefnd og ráðherrann að láta þetta ekki bíða fram til áranna 2014–2018. Við megum ekki bíða svo lengi.
Ég get tekið undir margt af því sem hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir sagði og vil ítreka það sem hún sagði um tvö svæði sem mjög mikilvægt er að hafi komið inn. Annars vegar Langisjór og Tungnárfjöll og hins vegar Þjórsárver. Að öllum öðrum svæðum ólöstuðum eru þessi gríðarlega mikilvæg. Einnig er mjög mikilvægt að í ályktuninni eru skóglendið við Hoffellsjökul og Steinadalur hugsuð sem viðbót við Vatnajökulsþjóðgarð og mjög mikilvægt verður við gerð náttúruverndaráætlunarinnar á næsta tímabili að styrkja stöðu þjóðgarðsins og koma sem flestu undir hatt hans.
Ég sakna Teigsskógar, en sérstök nefnd á vegum umhverfisráðherra sem mat verndargildi birkiskóga á landinu lagði til að hann yrði verndaður. Ég hef áður spurt hvað líði framkvæmd tillagna nefndarinnar og ef mig brestur ekki minni sagði hæstv. umhverfisráðherra þá í svari sínu á Alþingi að það kæmi til skoðunar við náttúruverndaráætlun á umræddu tímabili.
Fyrri náttúruverndaráætluninni fylgdu miklar væntingar, eins og hér hefur verið bent á, og það hefur valdið verulegum vonbrigðum að aðeins skuli hafa tekist að friðlýsa eitt svæði. Hér eru gefin fyrirheit um að nokkur svæði til viðbótar verði friðlýst og jafnvel tvö fyrir árslok 2008 og er það vel. Í fyrri áætluninni var einkum lögð áhersla á fuglasvæði. Nú er hins vegar tekin önnur stefna og lögð áhersla á sjaldgæfar tegundir og tegundir á válista, ábyrgðartegundir og tegundir sem falla undir alþjóðlega samninga. Mikilvægt er að mosavöxnu hraunbreiðurnar með fléttunum, sem einkenna ósnortna náttúru Íslands og eru einstakar jafnvel á heimsvísu, og vistgerðirnar, breiskjuhraunavistin sem er sérstaklega fyrir austan og eins rústamýravistin, fái verndunarstöðu, friðlýsta stöðu. Íslendingum finnst oft lítið koma til þessara vistgerða og finnst þær ekki vera gróið land en þær eru gríðarlega mikilvægar báðar tvær.
Hægt væri að segja margt um áætlunina. Ég vil vekja athygli þingmanna á bls. 38, 39 og 40 og framar á þeim frábæru nafngiftum sem sérfræðingar okkar í plöntutegundum, bæði mosum og fléttum hafa búið til yfir íslenskar tegundir sem hér eru listaðar, þeir Bergþór Jóhannsson mosafræðingur og Hörður Kristinsson fléttufræðingur. Ég vil nefna af handahófi birkikræðu, vætlukorpu, brókarhverfu, músanafla, gullinvarp og reyniglæðu. Þetta eru falleg heiti og lýsandi og vel til þess fallin að njóta nánari útbreiðslu og þekkingar í landinu.