náttúruverndaráætlun 2009–2013.
Virðulegi forseti. Hér er verið að ræða þingsályktunartillögu um náttúruverndaráætlun á árunum 2009–2013. Það má vissulega segja ef við horfum langt aftur í tímann þá hafi umgengni okkar um náttúru landsins verið að mörgu leyti ábótavant. Við lesum það í sögubókum og það er staðfest í rannsóknum að landið hafi verið skógi vaxið milli fjalls og fjöru og hefur ábyggilega úr fjarlægð verið ansi fallegt á að líta í þeim búningi. Við höfum með búsetu okkar hérna eytt þessum skógi og erum núna að basla við að reyna að rækta þetta svolítið til baka og skila landinu því sem við tókum gegnum aldirnar á þessum vettvangi. En hún væri ósköp einhliða landnýtingin okkar í dag ef við hefðum ekki eytt einhverju af þessum skógi. Þá værum við væntanlega bara með skógarnytjar í íslenskri náttúru. Við sæjum ansi lítið af náttúru landsins fyrir trjánum. Þau mundu byrgja okkur alla sýn og við kæmumst illa um. Með þessu er ég að segja, virðulegi forseti, að það þarf að vera samræmi á milli verndunar og nýtingar í náttúru landsins. Það þarf að vera grundvallaratriðið alveg sérstaklega hjá þessari þjóð sem byggir afkomu sína alfarið á nýtingu náttúruauðlinda til lands og sjávar. Náttúruvernd er þannig samspil náttúruverndar eða verndaðra svæða og þeirra svæða sem við ætlum að nýta.
Í þessari þingsályktunartillögu kemur fram að fjöldi svæða sem friðlýst hafa verið á grundvelli náttúruverndarlaga eða með sérlögum til náttúruverndar á landinu er nú 96 og flatarmál þeirra er um 19.500 ferkílómetrar eða sem svarar til tæplega 20% af flatarmáli landsins. Þessi 96 friðlýstu svæði skiptast þannig eftir friðlýsingarflokkum að þau eru flokkuð í þjóðgarða og þau eru sett samkvæmt sérlögum og svo náttúruvætti, friðlönd, fólkvangar og búsvæði. Samtals spannar þetta tæplega 2 milljónir hektara lands. Ég er ekki að segja að neitt sé ofaukið í því, alls ekki. Ég held að flestar þær ákvarðanir sem við höfum tekið um náttúruvernd, nú síðast sú stóra ákvörðun sem við tókum um að stofna Vatnajökulsþjóðgarð, séu ágætar ákvarðanir. En við verðum líka að hafa í huga að ef litið er til þess að helstu virkjunarkostir í landinu væru nýttir þá mundu þeir taka um 2% af landinu eða um 10% af því sem við erum þegar búin að vernda. Það verður því að líta til þessara þátta þegar við fjöllum um náttúruvernd í landinu í framtíðinni og þörfin er aldrei meiri en nú að við gerum okkur grein fyrir því að hér verður líka að forgangsraða í þágu nýtingar náttúruauðlinda.
Það er svolítið sérstakt þegar við hlustum á málflutning þeirra sem kenna sig við náttúruvernd og segjast vera náttúruverndarsinnar umfram okkur sem teljum okkur vera nýtingarsinna að þeirra umræða er yfirleitt mjög gegn allri nýtingu. Það eru fjölmörg dæmi um þetta. Það eru efasemdir við alla virkjunarkosti sem eru nefndir eða alla vega langflesta. Það er verið að auka mjög á allt regluverk sem þarf að uppfylla og fylgja til þess að ná fram skynsamlegri nýtingu náttúruauðlinda. Þetta hefur með í för gríðarlegan kostnað og flókna vinnu og nú eru meira að segja samtök atvinnulífs í landinu farin að leggja á það áherslu í sínum ályktunum að það verði að einfalda þetta ferli. Ég held að við hljótum að verða að taka undir það á sama tíma og við tökum vel í að farið sé yfir náttúruvernd skynsamlega og að við látum náttúruna í mörgum tilfellum njóta forgangs en þá verðum við líka að taka tillit til þess að hér sé hægt að nýta skynsamlega þær auðlindir sem landið býður. Öðruvísi byggjum við ekki upp hér mannvænlegt samfélag til lengri tíma litið.
Nefna má í þessu sambandi hvalveiðar sem nú er alveg borðleggjandi að ættu að fara af stað í okkar landi aftur. Því hefur verið haldið hér fram af svokölluðum náttúruverndarsinnum í þeirri umræðu á undanförnum árum að þetta væri til stórskaða fyrir aðrar atvinnugreinar í landinu svo sem ferðaþjónustu, þetta væri til stórskaða fyrir svokallaðan hvalaskoðunariðnað, þetta væri til stórskaða fyrir okkur á erlendum vettvangi og það væri ekki markaður fyrir þetta kjöt auk þess sem afurðir af þessum skepnum væri varla manneldishæfar og það væri ólöglegt að hafa viðskipti á alþjóðlegum vettvangi með þessar afurðir.
Nú hefur komið í ljós að þessi málflutningur hefur ekki verið á rökum reistur. En þessi málflutningur hefur tafið mjög framgang þessa máls og sett það í það ferli að það hefur kostað alveg gríðarlega fjármuni að koma þessu áfram og koma þessu í gegn og fyrirvarar eru alls staðar settir við málið. Það er þolinmæði þeirra sem unnu við þetta að þakka að þetta skuli þó vera komið alla leið núna og það skuli vera búið að hrekja allar mótbárurnar sem fluttar voru. Hvað gerist þá? Þá kemur yfirmaður umhverfismála í landinu, hæstv. umhverfisráðherra, og segir að það skipti bara engu máli í hennar huga, það breyti engu um afstöðu hennar gagnvart nýtingu þessarar náttúruauðlindar. Við skulum hafa það í huga, virðulegi forseti, að hér er um að ræða stofna dýra sem eru sko ekki í útrýmingarhættu heldur eru þeir eins nálægt 100% stærð og talið er að þeir geti orðið. Þetta er viðurkennt af alþjóðavísindasamfélaginu.
Þegar hún var minnt á að tillögur okkar virtustu vísindamanna sneru nú að því að veiða svo og svo mikið á hverju ári þá var svarið að hún hefði ekki kynnt sér þessar tillögur, hún hefði ekki kynnt sér tillögur vísindamannanna á þessum vettvangi. (Gripið fram í: Það hef ég gert.) Það veit ég.
Hún hefur kynnt sér vinnu og tillögur vísindamannanna okkar á Náttúruverndarstofnun, hjá þeim ágætu mönnum og hún tekur mark á þeim. Það sem ég er að koma að í þessum málflutningi er að við verðum að gæta samræmis. Við verðum að gæta samræmis í nálgun okkar á nýtingu og verndun náttúrunnar. Það er alveg stórhættulegt þegar fólk sem tekur að sér forustuhlutverk í þessum málum er ekki tilbúið til að horfa til beggja átta í þessum efnum. Landið hefur ekki efni á slíkum vinnubrögðum.
Að lokum, virðulegi forseti: Ég á eftir að kynna mér betur tillögu þá sem hér er til umræðu. Ég lít hana mjög jákvæðum augum og í umfjöllun þingflokks ... (Gripið fram í: Styður þú hverja ...?) Í umfjöllun þingflokks míns um þetta sagðist ég ekki sjá annað í fljótu bragði en að ég mundi styðja þetta mál. En ég mun bíða eftir því að fá athugasemdir þeirra sem um þetta þurfa að fjalla, meðal annars þeirra ágætu fyrirtækja sem undir nýtinguna heyra og munu skoða þetta með þeim augum og út frá því meta þær aðstæður sem verða á borðinu og afleiðingar þessarar áætlunar.
Ég vona að þetta geti farið vel saman við nýtingaráform okkar í framtíðinni. En ég bara legg á það áherslu að ráðherrann sem þessi málaflokkur heyrir undir, hæstv. umhverfisráðherra, fari nú svolítið að skoða málin í ljósi þess að hér er um þjóð að ræða sem þarf að nýta sínar náttúruauðlindir af festu og ábyrgð og með tilliti til náttúrunnar og það þýðir ekki að flauta alltaf einhver mál út af borðinu þegar (Forseti hringir.) þau koma til umræðu og heyra undir nýtingu.