náttúruverndaráætlun 2009–2013.
Frú forseti. Verndun er ein tegund af nýtingu á náttúrunni. Það er sjálfsagt að horfa á það líka frá þeirri hliðinni. Ég er alveg sammála hv. þingmanni um að ferðamenn koma hingað til Íslands af því að þeir hafa úrval margvíslegra tilboða eins og hv. þingmaður gat um. Hann er bersýnilega mikill aðdáandi hvalaskoðunar eins og ég. Menn koma hingað til að sjá langreyði blása og höfrunga hlaupa eftir sjávarfleti. Þeir koma hingað líka til að njóta þess sem er afrakstur jarðhitanýtingar eins og í Bláa lóninu og jarðhitaböðunum nyrðra en þeir koma ekki síst hingað til að sjá það sem þeir eiga ekki lengur tök á að sjá úti í hinni þéttbýlu Evrópu. Það eru ósnortin hrjóstur, það er land sem okkur fannst kannski lítið til koma sem börn og unglingar en metum þeim mun meira þegar við eldumst og skiljum hlutina öðrum skilningi. Menn koma hingað til að sjá og njóta einhvers sem er einstakt og öðruvísi. Vitaskuld vilja þeir líka geta komið hingað á sem þokkalegustu verði.
Ég er algerlega sammála hv. þingmanni um áherslurnar í ferðaþjónustu. Við eigum að leggja áherslu á gæði, áherslu á að selja hlutina dýrt sem eru mikils virði. Þess vegna höfum við, ég og hæstv. umhverfisráðherra, sameiginlega reifað þá hugmynd að þeir sem koma hingað beinlínis til að njóta landsins greiði fyrir það með einhverjum hætti í hvaða formi sem það verður, t.d. með því að innheimta af ferðamönnum einhvers konar gjald til að koma og njóta landsins, gjald sem yrði látið renna til þess að byggja upp slík svæði. En ég undirstrika að ég er þeirrar skoðunar að þessi áætlun hefur gildi, ekki bara til verndar náttúrunni heldur líka til uppbyggingar atvinnuvega eins og ferðaþjónustu. Það skiptir máli að menn geri sér algerlega grein fyrir því. Ég sé það að hv. þingmaður gerir sér grein fyrir því. Þess vegna ætti hann að koma hingað og ljúka upp munni sínum og mæla nokkur ástaryrði til hæstv. umhverfisráðherra fyrir þetta lofsverða framtak.