136. löggjafarþing — 45. fundur,  8. des. 2008.

náttúruverndaráætlun 2009–2013.

192. mál
[18:58]
Horfa

umhverfisráðherra (Þórunn Sveinbjarnardóttir) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Vegna þeirra atriða sem hv. þingmaður nefndi — fyrst vegna Teigsskógar vil ég segja: Eins og þingmönnum er kunnugt er genginn úrskurður og dómar hvað varðar vegarlagningu og annað í gegnum Teigsskóg. Ég hygg að fara þurfi ofan í saumana á því hvað það þýðir fyrir verndun skógarins, sú niðurstaða sem þar hefur fengist, eins og sveitarfélagið vill gera og leggja veginn og mér sýnist að það stefni ekki í neitt annað. Auðvitað er það rétt hjá hv. þingmanni að þarna er um mjög verðmætan skóg að ræða. Það þarf að skoða það vel og á grundvelli þeirrar skýrslu sem nefnd var sem við nefnum í daglegu tali birkiskógaskýrsluna í ráðuneyti umhverfismála. Ég er mjög opin fyrir því að skoða það vel en því verður ekki neitað að þetta hefur verið umdeilt svæði á undanförnum missirum og eins og mönnum er kunnugt úrskurðaði umhverfisráðherra, sá sem á undan mér fór, um það mál.

Hvað varðar svæðin í hafinu kringum landið þá eru þau vissulega mjög mikilvæg og eru ekki inni í þessari tillögu. Við höfum skoðað þessi mál í umhverfisráðuneytinu. Það liggur þannig að það þarf að eiga um það samráð og samvinnu við ráðuneyti sjávarútvegsmála og það viljum við gera en kaldkóralsvæðin í kringum Ísland eru að sjálfsögðu mjög verðmæt. Ég tel ekki útilokað, og ég tel alls ekki að áætlunin útiloki það, að við gerum fleira, og vonandi gerum við miklu fleira, á næstu fimm árum en að vernda þau svæði og þær plöntur og jarðminjar sem þar er kveðið á um. Ég vil ekki útiloka neitt í þeim efnum og tek undir með þingmanninum að bæði kaldkóralsvæðin og birkiskógarnir eru afar verðmæt svæði til náttúruverndar.