samráð ríkisstjórnarinnar við launþegasamtökin.
Virðulegur forseti. Það kom skýrt fram í skýrslu um efnahagsmál þegar hæstv. forsætisráðherra flutti um hana ræðu að hann vilji hafa samráð og samvinnu við aðila vinnumarkaðarins til þess að ná samstöðu í þeirri baráttu sem menn sáu fyrir sér þá um kjaraskerðingar þannig að ég held að það sé góður vilji hjá hæstv. ráðherra til að vera í slíku samráði. Auðvitað hefur álagið verið alveg gífurlegt núna þegar bankarnir hafa hrunið í höndunum á okkur þannig að ég trúi því og treysti að samráðið verði eflt núna þegar það álag hlýtur aðeins að minnka.
Það er mjög erfitt að horfa upp á að margt af fólkinu okkar ætlar sér að flytjast úr landi og flytjast þá sérstaklega til Norðurlandanna. Norræna félagið hefur verið með námskeið um það hvernig hægt sé að flytja héðan úr landi og það er mikið álag á sendiráðunum okkar úti, veit ég, þar sem fólk spyrst mikið fyrir. Það er geysilega mikilvægt að halda fólki hérna og halda atvinnu uppi. Þar skiptir samráðið svo miklu, að reyna að finna leiðir í því.
Þegar hæstv. ráðherra flutti ræðu sína um stöðu efnahagsmála sagði hann að besta andsvar okkar við núverandi þrengingum væri að virkja auðlindirnar í auknum mæli með ábyrgum og sjálfbærum hætti, jarðhita jafnt sem vatnsafl, og ráðherra tók líka sterkt til orða og sagði að það ætti að vinna okkur út úr tímabundnum erfiðleikum með því að framleiða, framleiða og aftur framleiða. Þetta voru mjög skýr skilaboð og ég vil því nýta tækifærið hér og spyrja hæstv. ráðherra hvernig staðan sé gagnvart orkufrekum iðnaði. Það hefur komið fram hér, t.d. í fyrirspurn frá Valgerði Sverrisdóttur, að stóriðjan leggur mjög mikið fram í íslenskt þjóðarbú, líklega 4.500 störf, föst störf og afleidd, og útflutningstekjur okkar eru að aukast úr 17% í 30% á yfirstandandi ári vegna stóriðjunnar.
Ég spyr því hæstv. ráðherra, fyrir utan það að taka undir með að við þurfum að efla ferðaþjónustuna, út í orkufrekan iðnað, (Forseti hringir.) hvers sé að vænta í þeim málum.