embætti sérstaks saksóknara.
Frú forseti. Virtur lögmaður hér í bæ sagði að skilanefndirnar störfuðu á lögfræðilegu einskismannslandi. Þær starfa í umboði Fjármálaeftirlitsins og á meðan svo er er það ekki fært um að hafa eftirlit með störfum þeirra frekar — þar er alveg klárt vanhæfi. Af skilanefndunum hefur síðan til að mynda umboðsmaður Alþingis verulegar áhyggjur, lagaleg staða þeirra er mjög óljós, rétt eins og lagaleg staða hinna nýju banka.
Ég ætla ekki að gera stórfelldan ágreining um þetta. Ákvæði í breytingartillögum, sem koma að vissu marki til móts við sjónarmið mín, voru sett inn og svo ítreka ég að auðvitað verður Fjármálaeftirlitið að víkja sæti komi upp slík mál sem ég hef í huga.