fundur með fjármálaráðherra Breta.
Virðulegur forseti. Ég staldra við lið 2 í fyrirspurn minni og ekki að ósekju. Það er vegna þess að það er alveg greinilegt af viðbrögðum Darlings að hann er mjög ósáttur við það sem hæstv. fjármálaráðherra Árni Mathiesen er að segja við hann í símtalinu og hann vitnar í fundinn með hæstv. viðskiptaráðherra Björgvini G. Sigurðssyni. Ég ætla að lesa þetta fyrir hæstv. viðskiptaráðherra og ég ætla að gera það á ensku til að það náist algerlega á tært hvað sá breski var að segja. Tilvitnun í Darling hefst, með leyfi forseta:
„I understand that, but I have to say that when I met your colleague and these others, basically, what we were told turns out not to have been right. I was very concerned about the London banking position and they kept saying there was nothing to worry about.“
Þetta er allt þýtt í skjali hér fyrir þá sem vilja lesa þetta á íslensku. Ég vel að segja þetta hérna á ensku af því að það er Darling sem er að segja þetta og hann er mjög ósáttur. Svo upplýsir hér hæstv. viðskiptaráðherra að hann bara kannist ekkert við þetta, Alistair hljóti þá bara að fara með rangt mál. Ég skil það sem svo að hæstv. viðskiptaráðherra Björgvin G. Sigurðsson saki hér breskan ráðherra um að fara með rangt mál í þessu samtali, að aldrei hafi verið talað um að þeir þyrftu ekki að hafa áhyggjur eins og Alistair, sá breski, upplýsir hér.
Ég vil fá þetta algerlega á hreint. Er það þannig að hæstv. viðskiptaráðherra Björgvin G. Sigurðsson sé hér að saka breska fjármálaráðherrann Alistair Darling um ósannindi í símtali við íslenska ráðherrann Árna M. Mathiesen? Það held ég að sé mjög mikilvægt að fá skýrt af því að daginn eftir setja menn hryðjuverkalöggjöfina á okkur af því að skilaboðin voru misvísandi. Það var gefið upp af bæði (Forseti hringir.) Alistair Darling og líka Ian Pearson, aðstoðarefnahagsmálaráðherra Breta.