136. löggjafarþing — 48. fundur,  10. des. 2008.

samráð við Fjármálaeftirlitið.

174. mál
[14:23]
Horfa

viðskiptaráðherra (Björgvin G. Sigurðsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Samkvæmt lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi er eftirlit með einstökum fjármálafyrirtækjum falið Fjármálaeftirlitinu sem sérstakri stofnun. Í 1. gr. þeirra segir að markmið laganna sé að stuðla að því að fjármálastarfsemi sem lög þessi taka til sé í samræmi við lög, reglugerðir og samþykktir sem hverju sinni gildi um starfsemina. Með öðrum orðum er Fjármálaeftirlitinu falið að hafa eftirlit með starfsemi einstakra eftirlitsskyldra aðila. Fjármálaeftirlitið er sjálfstæð stjórnsýslustofnun og er ekki gert ráð fyrir að viðskiptaráðherra sé í daglegu sambandi við eftirlitsaðilann, þvert á móti er bein aðkoma ráðherra að starfsemi FME takmörkuð við að hann skipar stjórn stofnunarinnar til fjögurra ára í senn. Sjálfstæði stofnunarinnar er í samræmi við alþjóðlega viðurkenndar kjarnareglur um sjálfstæði eftirlitsaðila fyrir banka.

Í lögunum um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi er kveðið á um að Fjármálaeftirlitið skuli gefa ráðherra skýrslu um áætlaðan rekstrarkostnað næsta árs og mat á þróun starfsemi eftirlitsins síðustu þrjú ár og hefur skýrsla þessi fylgt frumvarpi til laga um breytingu á lögum um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi sem fylgiskjal á hverju hausti.

Spurning númer tvö: Við, þ.e. ég sem ráðherra og forverar mínir, höfum að sjálfsögðu, kappkostað að tryggja sjálfstæði eftirlitsins og það er ákaflega mikilvægt að sjálfstæður aðili sé ekki háður öðrum hagsmunum en þeim sem felast beint í eftirlitinu sjálfu. Af því leiðir að ekki er venjan að forstjóri eftirlitsins geri ráðherra persónulega grein fyrir vandamálum einstakra eftirlitsskyldra aðila. Þess vegna er mjög eðlilegt að forstjórinn hafi ekki gert neina sérstaka grein fyrir málum í mars, apríl og maí heldur voru þau mál leyst á þeim tíma. Það hefði staðið upp á hann að gera mér grein fyrir því ef þau mál hefðu ekki verið leyst en þau voru leyst og um það náðist samkomulag á sínum tíma.

Auðvitað var mér fullkomlega kunnugt um að Landsbankinn byði upp á innlánsreikninga erlendis og fylgdist ég almennt með stöðu þeirra og stöðu bankanna. Hún var alveg morgunljós á þeim tíma og í samræmi við fjármálalega stöðugleikaskýrslu Seðlabankans frá því í maí. Síðastliðið vor uppfylltu bankarnir þrír öll viðurkennd viðmið um heilbrigðan rekstur og gátu hvorki sá sem hér stendur né innlendir eftirlitsaðilar, Seðlabanki eða Fjármálaeftirlit, á þeim tíma séð fyrir að skuldabréfavafningar í Bandaríkjunum mundu leiða til þeirra alheimshörmunga á fjármálamörkuðum sem síðar urðu.

En þess ber sérstaklega að geta vegna umræðu um stöðu innlánsreikninganna að yfir helmingur af innlánsreikningum Kaupþings var í dótturfélögum, miklu minna hjá Landsbanka og þess vegna var sett kerfisbundið af stað á vegum Fjármálaeftirlitsins sjálfs vinna með fjármálaeftirlitum heimalanda dótturfélaganna að koma starfsemi útibúanna inn í dótturfélög til að hún væri með eðlilegum hætti og til að heimalöndin bæru sjálf ábyrgð á innstæðum þarlendrar starfsemi.

Vegna þeirrar vinnu, sem er kjarninn í málinu öllu, gerði formaður stjórnar FME mér grein fyrir því í ágúst að hnökrar væru á þeirri vinnu af því að Bretarnir reistu svo háar kröfur að Landsbankinn gæti ekki mætt þeim innan þess tímaramma sem dreginn var upp. Þess vegna settum við málið á pólitískt stig og höfðum samband við ráðherrann úti til að reyna að greiða því leið þannig að sú mikilvæga vinna gengi eftir, þ.e. að innlánsreikningarnir í Bretlandi yrðu fluttir í dótturfélög. Bretarnir féllust ekki á það á þeim tíma, því miður, en það hefði bætt málið mjög að öllu leyti. Fjármálaeftirlitið var búið að vinna mjög vel að málinu í nokkra mánuði allt þetta ár þannig að staðan á þessum reikningum, bæði lagaleg og fjármálaleg, var oft til umræðu. Allir sem fylgdust með þar vissu hvernig staðan var og jafnframt að mikilvægt væri að koma innlánsreikningum yfir í dótturfélag undir innstæðuvernd þarlendra ríkja.

Þess vegna er umræðan um að eftirlitinu hafi borið að gera mér grein fyrir einhverju fyrr á árinu mjög undarleg. Fjármálaeftirlitið gerði það ekki af því að það var nákvæmlega ekkert til að gera mér grein fyrir sem við vissum ekki þá þegar. Því máli lauk í sátt á milli breskra stjórnvalda og Landsbankans úti. Svo hélt málið áfram og yfirvöld okkar þrýstu mjög á um það að innlánsreikningarnir yrðu fluttir yfir í dótturfélag. Þeirri vinnu lauk í rauninni aldrei og var í ákveðnu ferli þegar bankarnir féllu eins og við ræddum hérna áðan.