136. löggjafarþing — 48. fundur,  10. des. 2008.

samráð við Fjármálaeftirlitið.

174. mál
[14:28]
Horfa

Siv Friðleifsdóttir (F):

Virðulegur forseti. Ég vil inna hæstv. viðskiptaráðherra eftir því samráði sem hér er verið að spyrja um af því að það er alltaf verið að tala um sjálfstæði Fjármálaeftirlitsins. En á sama tíma er alveg ljóst að hæstv. ráðherra tekur t.d. með sér stjórnarformann Fjármálaeftirlitsins á fundinn 2. september sl. sem þeir áttu með Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta. Það er því að sjálfsögðu mikið samráð þarna á milli.

Ég vil inna ráðherra almennt eftir þessu samráði og tilgreini sérstaklega þrjá aðila: Það er hæstv. ráðherra sjálfur, forstjóri Fjármálaeftirlitsins og stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins. Hversu náið samráð er á milli þessara þriggja aðila? Er það nánast ekki neitt eða talast þessir aðilar við í síma við og við? Mér finnst mjög mikilvægt að það verði upplýst núna af því að við erum að reyna að skynja hvernig bankahrunið átti sér stað og hver aðdragandinn var.