háhraðanetþjónusta.
Virðulegi forseti. Sem svar við fyrri spurningu hv. þm. Kolbrúnar Halldórsdóttur um háhraðanetþjónustu skal sagt, eins og hér hefur reyndar komið fram, að Ríkiskaup fyrir hönd Fjarskiptasjóðs bauð út háhraðatengingar fyrir lögheimili með heilsársbúsetu og fyrirtæki með heilsársstarfsemi sem hvorki ættu kost á slíkri þjónustu nú né mundu eiga kost á slíkri þjónustu á markaðslegum forsendum. Útboðinu er lokið og sjö tilboð bárust og voru þau opnuð 4. september en vegna efnahagsaðstæðna sem nú ríkja hefur gildistími tilboðanna verið framlengdur til 20. janúar og vonir standa til að samningar takist fyrir þann tíma.
Út frá því sem hv. þingmaður sagði er hárrétt að því miður þurftum við að framlengja tilboðsfrestinn að ósk símafyrirtækjanna. Þetta er flókið verkefni og símafyrirtækin eða þeir sem buðu í verkið eða hugðust bjóða í verkið fóru um landið með mælitæki sín og fóru þá yfir mælingar okkar í útboðinu og báru saman, en þeir báðu um þennan frest sem var veittur og tilboðin voru þá ekki opnuð fyrr en 4. september.
Kostnaðaráætlun á því verki var 1.400–1.500 millj. og alveg upp í 2.000 millj. eftir því hvernig menn reiknuðu og hvaða tækni var hugsað um. Ánægjulegt var að lægsta tilboðið var upp á 379 millj. kr., sem var alveg frábært fyrir 3G-tækni og allt að 6 Mb hraða, flott og gott tilboð. En í miðri yfirferð yfir tilboðið skall kreppan á. Það er ekki fyrir það að við höfðum ekki áhuga á að skrifa undir, það er ekki svo, það þarf tvo til, og miklar viðræður hafa átt sér stað síðan, vegna þess að sannarlega urðu erfiðleikar í framhaldi af þessari kreppu, gengisþurrð og gengiskreppu, vegna þess að í upphafi þurfti að kaupa mikið af tækjum og þau voru þá keypt á allt öðru gengi en var þegar tilboðið var reiknað út.
Því hefur orðið samkomulag um það, virðulegi forseti, að framlengja tilboðsfrestinn til 20. janúar og var það gert fyrir töluverðum tíma með von um að ýmislegt mundi breytast í okkar ágæta þjóðfélagi, eins og t.d. hvað varðar bankaviðskipti, ábyrgðir og gengisskráningu og að gengið mundi styrkjast eitthvað. Það er aðalástæðan fyrir því, virðulegi forseti, að þetta er ekki enn komið í gang.
Sem svar við seinni spurningunni, þar sem er spurt um fjölda heimila, þá eru 1.118 staðir tilgreindir í útboðinu sem munu njóta góðs af verkinu. Í útboðinu er gert ráð fyrir að uppbyggingu verði lokið í síðasta lagi á 22 mánuðum eftir að samningar takast. Í flestum tilboðum sem bárust var hins vegar gert ráð fyrir að uppbyggingin yrði framkvæmd á tólf mánuðum eða einu ári, og það á líka við um lægsta tilboðið.
Það sem þarna hefur gerst — og af því að ég sé að hv. þm. Valgerður Sverrisdóttir er í salnum — er að í hinni ágætu fjarskiptaáætlun sem var í gildi var gert ráð fyrir — og ég man eftir að hv. þingmaður sagði það fyrir síðustu kosningar — að öllu háhraðaútboði til þeirra sem þyrftu á að halda eftir að Fjarskiptasjóði yrði lokið um síðustu áramót. Það gekk ekki eftir og tafðist af ýmsum ástæðum og aðalástæðurnar eru þær að markaðsfyrirtæki þurftu að leggja fram gögn yfir hvaða hluta landsins þau ætluðu að taka á markaðslegum forsendum, vegna þess að Fjarskiptasjóður má ekki fara inn á önnur svæði en þau sem fyrirtækin skilja eftir. Þá var — og ég held að menn ættu nú að taka vel eftir — talað um 200 bæi. Þeir urðu svo 1.118 þegar gengið var hart eftir að fyrirtækin sem boðuðu að þau mundu gera þetta á markaðslegum forsendum gerðu það ekki og að lokum sögðum við: Hingað og ekki lengra, við viljum koma þessu í útboð.
Þar að auki, virðulegur forseti, eru utan við þessa 1.118 staði nokkur svæði sem fyrirtækin héldu enn inni hjá sér. Ég veit a.m.k. um eitt svæði þar sem Gagnavinnsla Skagafjarðar hefur sagst vera hætt við áform sem hún ætlaði í á markaðslegum forsendum. Þetta er ástæðan, virðulegur forseti, fyrir því að staðirnir urðu svo margir og jafnframt ástæðan fyrir töfum sem hafa verið, en ég hef stundum sagt að fátt sé svo með öllu illt að ekki boði eitthvað gott, vegna þess að í þessu boði hoppum við í raun og veru yfir eina tækni sem sennilega hefði orðið ofan á fyrir ári síðan en fáum miklu betri tækni núna og miklu betra boð, þó svo að þessi óheppilegi dráttur hafi orðið, (Forseti hringir.) fyrst og fremst út af efnahagsástandinu.