framhaldsfræðsla.
Virðulegi forseti. Við ræðum frumvarp til laga um framhaldsfræðslu, svokallaða fimmtu stoð í menntakerfi þjóðarinnar. Fyrr á þessu ári samþykkti hv. Alþingi fjögur metnaðarfull frumvörp um leikskóla, framhaldsskóla, grunnskóla og háskóla sem hæstv. menntamálaráðherra hafði lagt fyrir sem og frumvarp um menntun kennara og skólastjórnenda. Við ræðum því fimmtu stoðina, ef svo má segja, í menntakerfi þjóðarinnar. Lög þessi ná til skipulags framhaldsfræðslu á vegum viðurkenndra fræðsluaðila með þátttöku ríkissjóðs í kostnaði við framkvæmd hennar.
Í 5. gr. þessa frumvarps stendur hver tilhögun námsins á að vera. Framhaldsfræðslan á að miða við þarfir einstaklinga, fyrirtækja og atvinnulífs og að jafnaði á námsframboði að vera þannig háttað að hægt sé að leggja stund á nám samhliða atvinnuþátttöku. Ég vil taka undir með hv. þm. Katrínu Jakobsdóttur þar er hún nefnir að ekki allir vinni utan heimilis og taki þátt í atvinnustarfsemi almennt. Til þessa hóps þarf sérstaklega að líta.
Með framhaldsfræðslu, eins og hún er skilgreind hér, er átt við að hvers konar menntun sé ætlað að mæta þörfum einstaklinga með stutta formlega skólagöngu að baki og ekki er skipulögð á grundvelli laga um framhaldsskóla og háskóla. Engu að síður ætti framhaldsfræðslan síðar að geta auðveldað þeim aðilum sem í henni taka þátt og ljúka með tilskildum árangri samkvæmt því mati sem fram er sett að hefja formlegt nám í framhaldsskóla og/eða háskóla og fá þá nám sitt metið sem hér er nefnt. Það sem skiptir ekki síður máli í þessu frumvarpi er það sem hér er nefnt raunfærnimat. Í því felst að með formlegum hætti er lagt mat á alhliða þekkingu og færni einstaklinga sem aflað hefur verið með skólagöngu, starfsreynslu, starfsnámi, frístundanámi, framhaldsfræðslu, félagsstörfum og lífsreynslu. Þessir þættir hafa sjaldnast verið metnir til menntunar og því ber að fagna að á þá skuli sérstaklega litið og þeir metnir sem raunverulegt nám, raunveruleg menntun til framhaldsfræðslu samkvæmt þessum lögum. Ég held að þetta sé sá þáttur í frumvarpinu sem komi til með að skipta mestu máli. Þetta er sá þáttur frumvarpsins sem er hvað sanngjarnastur gagnvart öllum þeim aðilum sem ekki hafa aðra formlega menntun að baki en skyldunám eða svokallað grunnskólanám.
Það sem skiptir líka meginmáli að mínu mati í þessu frumvarpi er svokallaður Fræðslusjóður, sem mun úthluta samkvæmt sérstökum úthlutunarreglum sem ráðherra staðfestir, að framlög til fræðsluaðila eigi að mæta kostnaði við kennslu og námskeiðahald, raunfærnimat, starfs- og námsráðgjöf og að styrkveitingar eigi að renna til nýsköpunar- og þróunarverkefna í framhaldsfræðslu. Þetta skiptir miklu máli og það skiptir máli að þeir fjármunir sem fara í þennan sjóð séu verulegir þannig að sjóðnum takist að stuðla að því að framhaldsfræðslan sem boðuð er í þessum frumvarpsdrögum verði að veruleika og verði virkilega til þess fallin að efla menntun og draga úr þeim mun sem er á menntunarstigi einstaklinga í þessu samfélagi. Það skiptir líka máli þegar skoðað er hve mikill munur er á menntunarstigi að horfa til þess hvar þeir einstaklingar eru, hvort þeir séu frekar í þéttbýli eða dreifbýli. Þá þarf að leggja áherslu á framhaldsfræðsluna á þeim stöðum þar sem þeir eru sem frekast þurfa á henni að halda. Ég er einfaldlega að horfa til þess sem er í hinum dreifðari byggðum landsins, þar þarf að gæta jafnræðis. Ef við sjáum að einhverjir þurfi meira en minna þá verði það gert með tilliti til þess fjölda sem býr á hverjum stað og þarf á umræddri menntun að halda.
Að lokum, hæstv. forseti. Það sem skiptir kannski meginmáli í þessu frumvarpi er að með því eflum við einstaklinginn. Við aukum lífsgæði hans. Við eflum sjálfsmynd hans til að takast á við lífið og tilveruna með enn betri og virkari hætti en margur hefur haft tækifæri til í dag. Það mun skila þjóðinni afar miklu á þessum tímum sem við lifum í augnablikinu og því fagna ég þessu frumvarpi til laga um framhaldsfræðslu. Sem fulltrúi í menntamálanefnd hlakka ég til að takast á við þetta verkefni og heyra í þeim sem um það munu fjalla og gera á því hugsanlega breytingar sem verða til bóta.