136. löggjafarþing — 51. fundur,  11. des. 2008.

stjórn fiskveiða.

207. mál
[17:01]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Einar K. Guðfinnsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil bara í upphafi þakka fyrir þær góðu viðtökur sem þetta mál hefur fengið og sérstaklega vekja athygli á þeirri sögulegu stund sem mér heyrist vera að renna hér upp, að hv. þm. Grétar Mar Jónsson er ekki mjög óánægður með það frumvarp sem ég hef lagt hér fram. Ég veit að þetta verður skráð í … (VS: … skammast …) Hann gat skammað kerfið en kannski er hann að taka sig á og ætlar að snúast. Þetta fannst mér samt vera söguleg og ánægjuleg stund fyrir okkur báða.

Virðulegi forseti. Aðeins út af því sem hv. 2. þm. Norðvest. Valgerður Sverrisdóttir spurði mig um er alveg rétt að þessi þorskeldiskvóti hefur verið notaður til þess að þróa áframeldi og það hefur tekist vel. Það hefur fengist um þetta gríðarlega mikil þekking og reynsla sem hefur nýst okkur mjög vel. Eins og við erum hins vegar alveg sammála um er framtíðin í því fólgin að stefna hér að aleldi. Ég hef verið með í gangi nefnd sem starfar á mínum vegum til að leggja á ráðin um það hvernig við eigum að standa að þessari uppbyggingu varðandi þorskeldið.

Ég sagði í umræðu sem fór fram utan dagskrár um þessi mál að það væri mjög skammt í það að nefndin skilaði af sér og ég held að ég geti fullyrt að hún eigi einungis eftir einn fund til að leggja formlega lokahönd á sitt starf sem ég geri þá ráð fyrir að verði vonandi fyrir jólin. Ég held að það sé ástæða til að binda vonir við þær tillögur sem þar munu birtast.

Virðulegi forseti. Að öðru leyti þakka ég fyrst og fremst fyrir þessar góðu umræður og góðar viðtökur þó að ég geri mér auðvitað grein fyrir því að málið á eftir að vinnast í hv. sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd.