136. löggjafarþing — 58. fundur,  15. des. 2008.

fjárlög 2009.

1. mál
[23:38]
Horfa

Illugi Gunnarsson (S):

Virðulegi forseti. Það er orðið áliðið kvölds og flest þau sjónarmið hafa komið fram sem skipta máli um uppbyggingu og samsetningu fjárlagafrumvarpsins. Ég vil því bara í nokkrum orðum gera grein fyrir skoðunum mínum á hinum ytri ramma fjárlaganna, efnahagsrammanum. Þá vil ég fyrst tiltaka að sá vandi sem verið hefur í íslensku hagkerfi á undanförnum árum sem hefur snúið að samspili ríkisfjármálanna annars vegar og peningamálastefnu Seðlabankans hins vegar var óleystur þegar bankakerfi landsins hrundi. Sá vandi fólst í því að við höfum aukið útgjöld ríkissjóðs og hins opinbera, þ.e. einnig sveitarfélaganna, alveg gríðarlega á undanförnum árum, um tugi prósenta að raungildi ef horft er á árin frá 1995 og fram til ársins 2007. Reyndar tók steininn úr á síðasta ári. Á sama tíma var Seðlabankinn að reyna að hamla gegn verðbólgu með því að hækka vexti, sem var hans eina stýritæki, en um leið og vaxtamunurinn við útlönd var orðinn svo mikill að menn fóru að nýta sér hann til að hafa af honum gróða flæddi hér inn í hagkerfið gríðarlegt fjármagn. Við þekkjum framhaldið, gengið varð allt of sterkt, útflutningsgreinarnar þjáðust og kaupmátturinn varð of sterkur fyrir vikið. Við settum hagkerfið á hliðina með þessari stefnu og við höfum ekki enn þá sett upp þann ramma og þá nálgun sem nauðsynleg er til að leysa þennan vanda. Ég vil vekja athygli á þessu því að þetta vill auðvitað gleymast í öllum þeim hörmungum sem nú hafa gengið yfir þjóðina.

Eitt af því sem við ræddum oft um fjárlög í þingsal var hið svokallaða aðhaldsstig fjárlaganna, munurinn á tekjum og gjöldum ríkissjóðs, hversu mikið ríkið tók til sín úr efnahagsstarfseminni og skilaði til baka í formi ýmiss konar þjónustu. Vissulega var mikill afgangur af fjárlögum árum saman en hluti af þeim afgangi varð til vegna fyrirtækja sem höfðu tekjur sínar erlendis, mynduðu hagnað sinn erlendis en greiddu skatt hingað heim. Þar af leiðandi var rangt að tala um eitthvert sérstakt aðhaldsstig fyrir íslenska hagkerfið sem myndaðist vegna slíkra tekna og á sama tíma var einnig vafamál hvort líta ætti á þær tekjur sem urðu til vegna viðskiptahallans — sem má líta svo á að hafi verið aukatekjur sem vart væri mark á takandi sem sérstöku hagstjórnartæki þegar menn horfðu á mismun tekna og gjalda ríkissjóðs og áhrif hans á hagkerfið sjálft. Það skiptir máli fyrir okkur að hafa þetta hugfast þegar horft er til framtíðar.

Nú stöndum við frammi fyrir mikilli kreppu og við hljótum að spyrja okkur sjálf hvenær henni ljúki af því að það hefur mikið að segja fyrir fjárlögin. Það snýr ekki bara að okkur Íslendingum heldur líka hvenær kreppunni lýkur erlendis. Spurningin er ekki bara um það hvenær kreppunni ljúki, heldur líka um leið hvenær hún hófst. Það má færa rök að því að sú kreppa sem við erum að fást við núna hafi hafist árið 2001 með árásinni á Bandaríkin og líka þegar menn voru að vinna sig út úr hruninu vegna netbólufyrirtækjanna, að með því að seðlabankar bæði Bandaríkjanna og Evrópu juku gríðarlega peningamagn í umferð hafi myndast það bóluhagkerfi sem við höfum síðan horft á hrynja til grunna í formi bankakreppu og lausafjárvanda. Spurningin er þess vegna: Hvar í kreppunni erum við stödd? Það er óskandi að séum að nálgast hægt og rólega einhvern fastan punkt. (ÁI: Hægt og rólega?) Já, hægt og rólega, hv. þingmaður, vegna þess að það gerist því miður ekki hratt að við komumst á einhvern endapunkt í því. Einhvern tíma komumst við á þann stað þegar hreinsast munu hafa út úr bankakerfinu allar þær eigur sem hafa verið rangt verðlagðar, þeir fjármálagjörningar sem hafa verið rangt verðlagðir, fyrr eða síðar hreinsast þetta út úr kerfinu og þá hafa menn einhvern punkt sem þeir geta aftur farið að vinna út frá. Þetta skiptir miklu máli fyrir okkur Íslendinga og því fyrr sem þetta gerist á alþjóðavettvangi, því betra.

Þegar kemur að verkefnum sem snúa að fjárlögum þessa árs höfum við, eins og ég sagði í upphafi máls míns, farið í gegnum flest þau mál sem snúa að þeim hvað varðar einstaka liði. Ég vil svo gera það að umræðuefni undir lok ræðu minnar að nú stöndum við frammi fyrir því í upphafi næsta árs að þurfa að hefja strax vinnu við næstu fjárlög vegna þess að þessi fjárlög hafa orðið til við mjög sérstakar aðstæður í kjölfar mikils hruns í hagkerfinu þar sem menn höfðu skamman tíma til ráðstöfunar til að ganga frá fjárlögum. Fjárlögin sem bíða okkar verða að vera þannig úr garði gerð að þar sé horft til að lágmarki tveggja og helst þriggja ára, ekki bara þannig að við setjum fram næstu fjárlög eins og hefð er fyrir og spáum svo fyrir um næstu tvö árin með einhvers konar línulegum aðferðum þar sem við reiknum með að draga úr útgjöldum eða auka þau eftir einhverjum reikniformúlum.

Við verðum raunverulega á næsta ári að leggja fram drög að þrennum fjárlögum. Mín hugmynd er sú að fjármálaráðuneytið ráði til sín bæði innlenda og erlenda sérfræðinga í þessa vinnu og hefjist handa strax í janúar til þess að við getum lagt fram þessi þrenn fjárlög þannig að markaðurinn og þeir sem starfa innan vébanda ríkisins viti nákvæmlega hvað sé fram undan í ríkisrekstrinum á næstu þremur árum. Þetta er gríðarlega mikilvægt vegna þess að með þessu móti getum við náð árangri í því að samhæfa hagkerfið. Vandinn sem við stöndum líka frammi fyrir núna felst í því að það er hætta á að við mögnum sveiflurnar, rétt eins og við mögnuðum sveifluna upp á við er hætta á því að við mögnum aftur sveiflu niður á við ef okkur tekst ekki vel til með aðgerðir í efnahagsmálum á næstu missirum. Mér finnst því grundvallaratriði þegar kemur að fjárlagavinnunni í framhaldinu að horfa til lengri tíma.

Hvað varðar útgjaldastigið er það staðreynd sem því miður verður ekki komist fram hjá að niðurskurður þessa árs sem er sennilega minni en við hefðum átt að ráðast í — þó að vel megi skilja þau sjónarmið sem lágu til grundvallar því að ekki var gengið lengra — þýðir að erfiðara verkefni er fram undan, okkar bíður erfiðara verkefni fyrir fjárlög næsta árs. Það verður ekki gert og við munum ekki ná árangri í því verkefni nema til komi sú pólitíska og stefnumarkandi leiðsögn sem felst í því að skera fjárlögin upp allt frá grunni, þ.e. að endurhugsa hvernig við ætlum að veita opinbera þjónustu í landinu. Þetta eru það alvarlegir tímar.

Ég get tekið undir með hv. þm. Ármanni Ólafssyni sem benti réttilega á að nú væri ágætistækifæri til að fara í svokallaða núllstillingu á fjárlögum þar sem menn byrja frá grunni og spyrja hvaða þjónustu við ætlum að veita og hvernig við ætlum að gera það. Ég held að það sé ágætt að gera það meðfram vegna þess að það hjálpar okkur að fókusera og beina athyglinni að því hvernig við eyðum peningunum, en við getum ekki farið í gegnum niðurskurð á fjárlögunum fyrir næstu tvö árin eða svo öðruvísi en að því fylgi mjög skýr stefnumótun af hálfu ríkisstjórnarinnar og Alþingis um það hvernig við munum forgangsraða. Til að ná árangri í því, enn og aftur, þurfum við að hefja þá vinnu strax í janúar.