niðurskurður í mennta- og heilbrigðismálum.
Virðulegi forseti. Mér fannst ein setning einkenna fjárlagaumræðuna í gær af hálfu stjórnarliða en það var það að aldrei skyldi hafa hvarflað að þeim að þessi staða kæmi upp, að þessi niðurskurður hefði einfaldlega dottið á þá af himnum ofan. Það er enginn að tala um það í stjórnarandstöðunni að við viljum setja þjóðina þráðbeint á hausinn, síður en svo. Það hefur ekki verið málflutningur okkar. Við höfum hins vegar gagnrýnt það að ekki sé horft til framtíðar. Hvað er betra en að farið verði varlega í að skera niður í menntamálum? Það er einfaldlega staðreynd að margir munu standa uppi atvinnulausir núna eftir áramót, sérstaklega þeir sem eru enn að vinna á uppsagnarfresti og þá hefði kannski verið betra að hafa meiri peninga til menntamála þannig að fólk gæti bjargað sér um stundabil og menntað sig meira. Ég spyr hæstv. ríkisstjórn: Af hverju hefur ekki verið unnið að tillögum og aðgerðum til að koma því fólki sem mun lenda í þessum vanda eftir áramót til hjálpar?
Það er líka eitt sem ég vil benda á varðandi rannsóknirnar. Nú á einmitt að vera tækifæri til að lyfta undir hjá þeim fyrirtækjum sem stunda rannsóknir, sem stunda frumkvöðlastarf. Mér er sérstaklega minnisstætt þegar ég lagði fram tillögu til þingsályktunar um skattaívilnanir vegna rannsókna- og þróunarverkefna að þingmenn Samfylkingarinnar gagnrýndu það og sögðu að þetta væri þeirra mál sem þeir mundu beita sér fyrir. Af hverju er það ekki upp á borðinu núna? Ég spyr.