niðurskurður í mennta- og heilbrigðismálum.
Herra forseti. Það eru þrjú atriði sem ég þarf að reyna að koma að á örstuttum tíma.
Í fyrsta lagi: Ég mun halda þeirri gagnrýni minni til streitu að formenn stærstu nefnda í þinginu eigi að vera hér til andsvara og skýra sína sýn á fjárlagafrumvarpið. Það á jafnt við hvort þeir eru í þingflokki Sjálfstæðisflokksins eða annars staðar. Ég horfi hér á hv. þm. Katrínu Júlíusdóttur sem er formaður iðnaðarnefndar og var heldur ekki við umræðuna í gær. Aðrir formenn nefnda en þeir þrír sem ég nefndi tóku að sjálfsögðu til máls og ég vek athygli á því að formenn nefnda í þinginu hafa álag á kaupið sitt sem nefndarformenn, er ekki svo? Ég kalla eftir því að þeir taki þátt í umræðunni og séu til andsvara.
Í öðru lagi er mjög athyglisvert að þegar maður tekur sig til og spyr gagnrýninna spurninga og vísar þeim til Sjálfstæðisflokksins um blóðugan niðurskurð í heilbrigðiskerfinu, hvað gerist? Stekkur ekki Samfylkingin upp og setur varnarskjöldinn fram. Hv. þm. Ágúst Ólafur Ágústsson kemur hér fram og slær varnarskildi fyrir blóðugan niðurskurð Sjálfstæðisflokksins í heilbrigðisþjónustunni. Það er dapurlegt að á þessum degi í dag verður brotið í blað vegna þess að hér er tillaga um að sjúklingar eigi í fyrsta skipti að fara að greiða aðgöngumiða að sjúkrarúmunum inni á spítölunum. Við munum fara í atkvæðagreiðslu um það hér á eftir. Hv. þm. Ágúst Ólafur Ágústsson, Samfylkingin, ætlar að leyfa Sjálfstæðisflokknum að plokka 360 millj. kr. af sjúklingum þegar þeir eru komnir á nærbuxunum upp í sjúkrarúm.
Það vekur upp minningar um að það var ráðherra Samfylkingarinnar þáverandi, þ.e. Alþýðuflokksins, sem tók upp sjúklingaskattana fyrst 1991. Þetta er í rauninni arfleifð frá Samfylkingunni og það er nöturlegt að þessi flokkur skuli leyfa sér að koma að niðurskurði í fjármálum með þeim hætti að heimila þessa nýju sjúklingaskatta. Það hefur aldrei verið hér. Það er í lögum að sjúkrahúsvist skuli vera ókeypis. (Forseti hringir.) Það var dapurlegt að horfa upp á þetta, herra forseti.