136. löggjafarþing — 59. fundur,  16. des. 2008.

fjárlög 2009.

1. mál
[15:15]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg):

Herra forseti. Atkvæðaskýring mín nær til liðanna 249–251 sem er niðurskurður í heilsugæslu. Heilsugæslan sem fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustu okkar er ákaflega mikilvæg eining. Menn vita að með því að styrkja hana er hægt að spara verulega útgjöld þegar kemur að dýrari þjónustu sem er sérfræðiþjónustan. Með því að taka um 1 milljarð kr. af heilsugæslu í landinu er verið að spara eyrinn en kasta krónunni. Ég gagnrýni þar að auki harðlega að út úr heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins skuli teknar 70 millj. kr. til þess að færa á sérstakan safnlið handa ráðherranum til að sýsla með heilbrigðisumdæmin úti um land. Það þarf að byggja upp heilsugæsluna í landinu og sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, ekki skera hana niður.