136. löggjafarþing — 61. fundur,  18. des. 2008.

tilkynning um dagskrá.

[13:02]
Horfa

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Um klukkan 1.30 í dag, að loknum óundirbúnum fyrirspurnatíma, fer fram umræða utan dagskrár um vanda smærri fjármálafyrirtækja. Málshefjandi er hv. þm. Höskuldur Þórhallsson. Hæstv. viðskiptaráðherra verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.