136. löggjafarþing — 61. fundur,  18. des. 2008.

Tryggingastofnun ríkisins.

[13:06]
Horfa

félags- og tryggingamálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Hæstv. forseti. Samin voru lög um Sjúkratryggingastofnun sem þegar hafa tekið gildi og við erum að vinna í uppskiptingu að því er varðar starfsemi Tryggingastofnunar og Sjúkratryggingastofnunar á grundvelli þeirra laga. Ég viðurkenni fúslega að ástandið á umliðnum vikum hefur verið óviðunandi, ekki síst fyrir starfsmenn þessarar stofnunar, en ég á von á því að við fáum niðurstöðu í málið fljótlega. Niðurstaðan byggir auðvitað á því samkomulagi sem flokkarnir hafa gert um þessa uppskiptingu að því er varðar sjúkratryggingar og almannatryggingar. Hún mun vitaskuld byggjast á þeim lögum sem sett hafa verið um þessa starfsemi og mun byggjast á því hvað er stjórnsýslulega fært í þessu efni. Niðurstaðan mun byggjast, a.m.k. um sinn, á þeirri lausn sem við teljum að sé hagkvæmust miðað við núverandi stöðu í samfélaginu.

Hv. þingmaður talar um 250 millj. kr. Það er auðvitað fjarstæða að verið sé að fara út í svo mikil útgjöld við þessa uppskiptingu. Við erum að leita annarra lausna sem skilar okkur hagkvæmari niðurstöðu og er viðunandi bæði fyrir starfsmennina í báðum þessum stofnunum og fyrir þjónustu stofnunarinnar. Þótt ekki hafi fengist niðurstaða í þetta enn að því er varðar uppskiptinguna tel ég að þetta hafi ekki bitnað neitt á þjónustu eða starfsemi þessara stofnana. Það hefur vissulega valdið miklum óþægindum fyrir starfsfólk, það viðurkenni ég fúslega, en ég hygg að við munum leysa þessi mál vonandi nú á næstu einum eða tveimur sólarhringum.