136. löggjafarþing — 61. fundur,  18. des. 2008.

málefni háskólanema.

[13:11]
Horfa

Birkir Jón Jónsson (F):

Hæstv. forseti. Ég beini fyrirspurn til hæstv. menntamálaráðherra um málefni háskólastúdenta hér á landi. Sá hópur glímir við mikla erfiðleika. Verðbólga undanfarinna mánaða hefur étið upp alla þá hækkun sem varð á framfærslu LÍN síðastliðið vor auk þess sem gerbreytt ástand á vinnumarkaðnum veldur því að það fólk sem vann meðfram námi fær ekki vinnu í dag til að framfleyta sér. Hér er því um gríðarlega alvarlega stöðu að ræða og það er líka mjög alvarlegt mál að hæstv. ráðherra skuli ekki hafa rætt við forsvarsmenn námsmannahreyfingarinnar, sem eru þar í forsvari fyrir 20 þúsund námsmenn, sem báðu um fund með hæstv. ráðherra 14. nóvember sl. Hæstv. ráðherra hefur ekki gefið sér tíma til að hitta fulltrúa þessara 20 þúsund háskólanema sem er mjög alvarlegt mál vegna þess að þessi þjóðfélagshópur stendur ansi höllum fæti eins og reyndar margir aðrir þessi missirin.

Ég spyr hæstv. ráðherra í ljósi þess að nú er sexföld fjölgun innskráninga í Háskóla Íslands miðað við síðustu vorönn, hvort það sé ekki eins og blaut tuska frá stjórnvöldum til námsmanna að skera niður framlög til Háskóla Íslands um 950 millj. kr. Hvernig á Háskóli Íslands að þjónusta nemendur og hvernig á hann að standa undir þeirri starfsemi um leið og stjórnvöld hvetja fólk til að fara í nám þegar það missir vinnuna, þá séu skorin niður framlög til Háskóla Íslands og annarra háskólastofnana í landinu? Hvernig á þessi jafna að ganga upp? Ég spyr hæstv. ráðherra því: Hvernig ætlar ráðherrann að koma til móts við þarfir 20 þúsund háskólanema hér á landi sem þurfa mánaðarlega að greiða 20% yfirdráttarvexti, fá lán hjá ríkisbönkunum til að fá námslán? Það er alveg ljóst að það þarf að breyta þessu og ég hvet hæstv. ráðherra að ræða við námsmenn, að hlýða kalli þeirra þegar þeir óska eftir (Forseti hringir.) fundi til að ræða sín brýnu málefni.