136. löggjafarþing — 61. fundur,  18. des. 2008.

reglur um starfsemi ríkisbankanna.

[13:18]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf):

Virðulegi forseti. Sérkennilegt ástand ríkir í samfélaginu og það ganga alls konar sögur um alls konar hluti sem eiga að eiga sér stað í bönkunum. Meðal fólks er mikill ótti um hvernig farið er með eignir sem liggja inni í bönkunum og mikil óvissa er um hvernig farið er með skuldamál einstaklinga og fyrirtækja í bönkunum núna.

Við þessar aðstæður er stjórnmálamönnum mikill vandi á höndum. Við getum farið aftur í tímann og beitt þeim aðferðum sem einu sinni var beitt sem felast í því að stjórnmálamenn fari að hafa afskipti af innri málum banka, hverjir fái lán, hverjir séu ráðnir til starfa í bönkum o.s.frv. — eða menn geta reynt að setja almennar leikreglur.

Ríkisstjórnin markaði góðu heilli þá meginstefnu í nýtilkynntum aðgerðapakka að settar yrðu almennar leikreglur um hvernig farið yrði með mál af þessum toga í nýju ríkisbönkunum þremur. Ég vildi þess vegna inna hæstv. viðskiptaráðherra eftir hvernig því verki miðaði. Ég tel að það sé afskaplega mikilvægt til þess að skapa grunn undir málefnalega þjóðfélagsumræðu, sem hreinlega er horfin í landinu í dag, að við fáum þessa hluti á hreint. Að settar séu almennar leikreglur og allir viti hvaða reglur gildi í þessum efnum, öllum sé ljóst eftir hvaða viðmiðum bankarnir vinna. Því fyrr því betra. Ég vildi þess vegna inna hæstv. ráðherra eftir því hvernig miðaði vinnu við gerð þessarar áætlunar sem ríkisstjórnin boðaði í aðgerðaáætluninni.