136. löggjafarþing — 61. fundur,  18. des. 2008.

reglur um starfsemi ríkisbankanna.

[13:23]
Horfa

viðskiptaráðherra (Björgvin G. Sigurðsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Það hefur ákveðinn leyndarhjúpur umleikið störf bæði skilanefnda og banka á síðustu vikum. Þar er við okkur sjálf að sakast. Við þurfum að bregðast við því og auka verulega upplýsingamiðlun bæði til almennings og fjölmiðla um þessi störf og starfsemi og minna á að allir þingflokkar á Alþingi komu að því að tilnefna fólk í bankastjórnir nýju bankanna. Þar situr grandvart sómafólk og vinnur afskaplega gott starf.

Auðvitað tekur tíma að hreinsa borðið og endurbyggja traust og það tekur tíma að vinna að þessum grundvallarmálum. Þessar verklagsreglur skipta þar mestu máli til að tryggja gagnsæið, jafnræðið og traustið og nú eru þær að líta dagsins ljós, fyrst hjá Glitni og síðan hinum bönkunum. Það er fagnaðarefni enda algjört grundvallaratriði til þess að bankarnir geti sinnt því gríðarlega mikla hlutverki sem þeirra bíður í vetur. Samfélagsleg ábyrgð þeirra í þessu öllu er mjög mikil.