136. löggjafarþing — 61. fundur,  18. des. 2008.

endurskipulagning Fjármálaeftirlitsins.

[13:37]
Horfa

viðskiptaráðherra (Björgvin G. Sigurðsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég er bara ekki sammála þessu. Ég treysti Fjármálaeftirlitinu fullkomlega. Þar hefur verið unnið, eins og ég sagði áðan, mikið starf við erfiðar aðstæður, dag og nótt, við það að bjarga og vernda eigur bankanna. Það verður að gera þær kröfur að gagnrýni sem er sett fram á Fjármálaeftirlitið, eins og Seðlabankann og aðrar stofnanir stjórnvalda, sé ígrunduð og á rökum reist. Það er ekki þolandi fyrir það fólk sem leggur jafnmikið á sig og starfsmenn eftirlitsins og svo margir aðrir að þurfa að sitja undir óígrundaðri umræðu um hæfi sitt og störf.

Þetta fólk hefur unnið mikið og gott starf, stjórn Fjármálaeftirlitsins, stjórnendur og allir almennir starfsmenn hafa unnið mikið og gott starf. Ég treysti þeim fullkomlega til að halda því áfram og harma það hve langt hefur verið gengið í umræðunni um það og reynt að varpa rýrð á störf þeirra. Þetta er sjálfstæð stofnun sem lýtur sérstakri stjórn og ráðherra skipar stofnuninni ekki fyrir verkum, en henni er skipuð stjórn og ég treysti Fjármálaeftirlitinu (Forseti hringir.) fyrir því að hafa gengið úr skugga um almennt hæfi skilanefndamanna eins og þeir hafa sagt að þeir hafi gert.