136. löggjafarþing — 61. fundur,  18. des. 2008.

meðferð sakamála.

217. mál
[14:38]
Horfa

Frsm. allshn. (Birgir Ármannsson) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti allsherjarnefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála. Í nefndarálitinu kemur fram að nefndin fjallaði um málið og fékk á fund sinn Rögnu Árnadóttur frá dóms- og kirkjumálaráðuneyti.

Með frumvarpinu er lagt til að stofnun embættis héraðssaksóknara verði frestað um eitt ár eða til 1. janúar 2010. Ákvæði laga um meðferð sakamála taka að öðru leyti gildi 1. janúar 2009 og munu leysa af hólmi lög um meðferð opinberra mála.

Allsherjarnefnd leggur áherslu á að frestunin er til komin vegna þeirra aðstæðna sem nú eru uppi í ríkisfjármálum. Nefndin vill hins vegar árétta þá afstöðu sína að efling ákæruvaldsins m.a. með stofnun embættis héraðssaksóknara er mikilvægt framfaraskref og leggur því áherslu á að hér er aðeins um að ræða frestun til eins árs. Allsherjarnefnd leggur til að frumvarpið verði samþykkt.

Atli Gíslason skrifar undir nefndarálitið með fyrirvara. Sigurður Kári Kristjánsson, Siv Friðleifsdóttir, Ólöf Nordal og Jón Magnússon voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

En undir nefndarálit þetta rita auk mín hv. þm. Ágúst Ólafur Ágústsson, Atli Gíslason, með fyrirvara, Ellert B. Schram og Karl V. Matthíasson.