136. löggjafarþing — 61. fundur,  18. des. 2008.

meðferð sakamála.

217. mál
[14:52]
Horfa

Árni Þór Sigurðsson (Vg):

Frú forseti. Mér þótti mikilvægt að fá fram þessar upplýsingar frá hv. þingmanni um að hve miklu leyti þetta mál hefði verið til umfjöllunar á vettvangi nefndarinnar í tengslum við afgreiðslu þessa máls. Vegna þess að þó að það komi ekki beinlínis fram í málinu sjálfu er vísað til þess þrátt fyrir allt í nefndarálitinu að gert sé ráð fyrir þessari frestun á gildistöku fyrri ákvæða um embætti héraðssaksóknara vegna þeirra aðstæðna sem nú eru uppi í ríkisfjármálum. Þar er að sjálfsögðu verið að vísa til efnahagshrunsins. En hér hefur verið til umfjöllunar mál er varðar sérstakan saksóknara til að fara í þessi Icesave-mál og þess vegna hefði mér fundist eðlilegt að hv. allsherjarnefnd hefði rætt það mál sérstaklega. Auðvitað höfum við tekist aðeins á um það eða spurst fyrir um það að undanförnu í þinginu, verið með fyrirspurnir til ráðherra og nefndarformanna um hvað þessu máli líði og af hverju stjórnvöld aðhafist svo lítið, a.m.k. að því er séð verður í því efni að höfða mál til að rétta hlut Íslands og íslenskra fyrirtækja og bara Íslendinga almennt á erlendri grund.

Ég held að mörgum hafi verið farið að leiðast þófið svo mikið, ekki bara í stjórnarandstöðunni heldur líka í stjórnarflokkunum, í Sjálfstæðisflokknum þykist ég vita, að núna er komið fram sérstakt þingmannamál sem er flutt af þingmönnum úr öllum stjórnmálaflokkum, lagafrumvarp sem gerir ráð fyrir því að heimila ríkissjóði að taka þátt í kostnaði vegna undirbúnings málaferla í tilefni af þessu máli.

Ég tek fyllilega undir það með hv. þm. Atla Gíslasyni að í rauninni er með ólíkindum hvernig að því máli öllu var staðið og hvernig Bretar léku Íslendinga í því efni. Erum við samt ekki alveg óvön því að þurfa að takast á við breska heimsveldið en þetta var auðvitað óvenju svívirðileg atlaga að íslenskum hagsmunum og hefur kostað samfélagið gríðarlegar fórnir. Þær skuldbindingar sem við erum að takast nú á herðar eru dæmafáar í Íslandssögunni.

Hv. þm. Pétur H. Blöndal, sem er reikningsglöggur maður, hefur reiknað það út að þær skuldbindingar sem við erum að taka á okkur á hvern íbúa séu margfalt hærri en þær skuldbindingar sem Þjóðverjar tóku á sig eftir fyrri heimsstyrjöld í gulli og þótti mörgum nóg um það. Það er einmitt gott að setja málin í svona samhengi til að fólk líka annars staðar átti sig á hvað þetta eru stórar fjárhæðir og miklar byrðar fyrir okkur að bera.

Ég varð þess t.d. áskynja þegar ég sótti fund í þingmannanefnd EFTA í októbermánuði í Brussel, þar sem við áttum þess kost að ræða við forustumenn frá Evrópusambandinu, bæði frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og ráðherraráðinu og frönsku formennskunni, að þar voru miklar kröfur á Ísland að gangast við skuldbindingum sínum, að standa undir þeim og gera samkomulag um hvernig gera ætti skuldirnar upp áður en nokkur fyrirgreiðsla fengist hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Ég greindi frá þessari upplifun minni bæði í þinginu og í fjölmiðlum og það kom mjög mörgum á óvart. Því var jafnvel haldið fram að þetta hefði ekki verið eins og ég lýsti því en svo kom í ljós að sama dag og við vorum á fundi þingmannanefndar EFTA var fjármálaráðherra Íslands á fundi með fjármálaráðherrum EFTA og Evrópusambandsríkjanna og þar kom auðvitað nákvæmlega sama fram, sama afstaða, sama harka í garð Íslendinga. Ég held að mönnum hafi algerlega blöskrað það.

Það var því ljóst strax í upphafi að svona ætlaði Evrópusambandið að standa að þessum málum gagnvart okkur, sýna okkur fullkomna óbilgirni. Og ég varð þess áskynja að þegar verið var að tala um fjárhæðirnar sem hér voru á bak við, þær fjárhagslegu skuldbindingar sem við mundum taka á okkur, að upphæðirnar sem við vorum að nefna í þessu sambandi reyndust vera svo smáar í hugum þessara stóru ríkja í Evrópu að þau botnuðu ekkert í því af hverju við værum að kvarta yfir þessu. Þetta væru bara smámunir. Það var vegna þess að þessar fjárhæðir voru svo smáar fyrir þau, ég tala nú ekki um stóru ríkin eins og Frakkland og Bretland, en jafnvel fyrir smærri ríki innan Evrópusambandsins, sem eru þó með íbúatölu sem er kannski tíu sinnum íbúatalan hér á landi, voru þetta svo smáar upphæðir að menn skildu ekkert í því af hverju við værum að kvarta og kveina. Af hverju við gengjumst ekki bara við þessu og tækjum þetta á okkur. Menn gera sér sem sagt ekki grein fyrir því hve íslenskt samfélag er fámennt og hve efnahags- og hagkerfið okkar er lítið og þolir illa áföll af þessari stærðargráðu. Þess vegna hefur mér fundist samanburður í þá veru sem hv. þm. Pétur H. Blöndal hefur verið með góður til að sýna fram á einmitt hlutföllin og hvað þetta er alvarlegt mál fyrir okkur.

Í tengslum við þetta mál finnst mér, frú forseti, sérstaklega mikilvægt að heyra aðeins viðhorf hv. þm. Birgis Ármannssonar, formanns allsherjarnefndar, til þess hvort ekki hefði verið eðlilegt að nefndin hefði rætt þetta sérstaklega. Að nefndin hefði til að mynda flutt það þingmál sem nú er komið hér inn, flutt af fimm þingmönnum, og þá á fyrri stigum til að eyða öllum vafa og til að gefa þau skilaboð, bæði út í samfélagið hér á landi og eins gagnvart málsaðilum erlendis, að við litum allt þetta mál mjög alvarlegum augum. Í raun og veru má líka spyrja sig að því af hverju þingmál af þessum toga sé ekki komið inn frá ríkisstjórninni fyrir löngu og hvað hefur haldið aftur af ríkisstjórninni í því að hafa myndarlegt og myndugt frumkvæði í málinu. Ég sakna þess að sjálfsögðu. Ég tel að ríkisstjórnin hefði átt að ganga á undan þarna strax á fyrstu stigum málsins og ekki vera með neinn veimiltítuhátt í því efni.

Hv. þm. Atli Gíslason rakti ágætlega hvernig þetta mál er vaxið lagalega og hefur í því efni vísað m.a. til ágæts erindis og skrifa Bjargar Thorarensen, prófessors í lögum og forseta lagadeildar Háskóla Ísland, um þetta atriði þar sem hún hefur farið rækilega yfir það og leitt rök að því að þeir samningar sem Íslendingar hafa þurft að skrifa undir í þessu efni hafi verið nauðungarsamningar og væru að þjóðarétti og íslenskum lögum ógildanlegir.

Mér leikur forvitni á að vita og heyra frá hv. þm. Birgi Ármannssyni hvaða afstöðu hann hefur til málsins. Hvaða afstöðu hann hefur t.d. til þess máls sem er þegar komið inn og varðar þetta og þá einkum og sér í lagi, eins og ég nefndi áðan, hverju það sætir að nefndin sem hann veitir formennsku hafi ekki tekið þetta til umfjöllunar, fengið á sinn fund sérfræðinga, lögfræðisérfræðinga, sérfræðinga í þjóðarétti, Evrópurétti o.s.frv., til að ræða þetta mál. Þó að mér sé auðvitað kunnugt um að heimildin til handa ríkisstjórninni til að leiða til lykta það mál sem hér var samþykkt með þingsályktun, var til umfjöllunar á vettvangi utanríkismálanefndar þá er þetta samt sem áður mál sem snertir starf hv. allsherjarnefndar með þeim hætti sem hér hefur verið fjallað um.

Herra forseti. Ég hefði gjarnan viljað heyra frá hv. þm. Birgi Ármannssyni um þetta atriði og hvort hann sé þeirrar skoðunar að hefja eigi málarekstur vegna þessara mála allra. Hvort hann sé samþykkur því og hvort hann muni beita sér fyrir því að svo verði, þó að það hafi ekki verið til umfjöllunar í nefndinni, þegar málið kemur hér til umræðu sem ég vona sannarlega að verði fyrir jólaleyfi þingsins vegna þess að það eru síðustu forvöð ef menn ætla ekki að renna út á tíma gagnvart þeim tímafrestum sem eru í þessu máli.