þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga.
Hæstv. forseti. Þegar þetta mál var lagt fram við 1. umr. tók ég til máls og hvatti til þess að hér yrði unnið áfram og nefndi þá að þetta væri í raun og veru mál sem væri til fyrirmyndar hvernig að væri staðið. Þarna var unnið að og bætt úr brýnni þörf með samþættingarþjónustu fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga. Það var verið að samþætta verkefni sem lágu hjá þremur ráðuneytum og einu ráðuneytinu falið að hafa umsjón með þessum þætti án þess þó að menntamálaráðuneyti og heilbrigðisráðuneyti, sem eru þá hin tvö ráðuneytin, væru gerð ábyrgðarlaus í því sambandi. Félagsmálaráðuneytinu er falin þessi umsjón og hin tvö ráðuneytin eiga fulltrúa í samráðsstjórn þessarar stofnunar, gegna samhæfingarhlutverki áfram og eiga að vera tengiliðir með sérþekkingu sína inn í þessa nýju stofnun.
Þarna er einnig til fyrirmyndar hvernig unnið er að því að hafa þá aðila sem hlut eiga að máli með í því að móta stefnuna og frumvarpið um þjónustuna. Ég hvet til þess að áfram verði unnið með þessum hætti, að undirbúningsvinna að slíkum stofnunum verði ekki eingöngu í höndum viðkomandi ráðuneyta, þvert á móti verði unnið með þeim sem málið varðar, að það sé ekkert unnið — eins og öryrkjar og fatlaðir segja: ekkert um okkur án okkar — án þess að sjúklingar og fatlaðir séu með í ráðum.
Því tel ég ánægjulegt að við getum staðið að því að gera þetta að lögum núna fyrir jól. Ætli þetta sé þá ekki eina frumvarpið sem við getum sagt að við stöndum að með stolti. Við erum hér að vinna í hverju málinu á fætur öðru þar sem er niðurskurður, skerðingar á bótum, skerðingar á samningum og í raun og veru erfið mál fyrir alla sem bitna ekki síst á sjúklingum og öryrkjum.
Ég vil nefna hérna einn þátt, þann sem varðar gjaldið. Það er sérstaklega tekið fram í nefndarálitinu að ekki sé ætlunin að taka gjald fyrir þjónustu sem hingað til hefur verið gjaldfrjáls. Ég varpa því inn í nefndina aftur eða til þeirra sem standa að þessu hvort það hafi verið skoðað hvort með einhverjum ráðum væri hægt að festa þetta ákvæði, að sú þjónusta sem hefur verið gjaldfrjáls verði gjaldfrjáls. Við höfum talið okkur örugg með þjónustu á sjúkrahúsunum en nú á að fara að taka það af, það á að fara að leggja á gjald fyrir innlagnir á sjúkrahús þannig að mér sýnist ekkert heilagt hjá núverandi hæstv. ríkisstjórn með það að leggja gjald á sjúklinga og öryrkja og þjónustu sem þeim er veitt. Ég treysti því ekki alveg að þetta haldi og tel að ef hæstv. ríkisstjórn væri í mun að halda þessari þjónustu gjaldfrjálsri áfram hefði með einhverjum hætti átt að festa það frekar.
Í öllu því svartnætti sem við erum í núna og þeim skerðingarákvæðum sem verið er að setja á landsmenn, öryrkja og sjúklinga tel ég að þetta sé ljósið í myrkrinu í störfum okkar í dag.