þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga.
Virðulegi forseti. Hér er til umræðu mál sem er fyrsta málið á fimm vikna ferli mínum í þinginu sem ég er virkilega stolt af að hafa tekið þátt í umræðu um og fengið að afgreiða héðan.
Hér hafa þrír hæstv. ráðherrar ásamt fagaðilum frá þeim hagsmunaaðilum sem hér um ræðir lagst á sömu sveif og unnið saman að því að samþætta þjónustu við blinda, sjónskerta og daufblinda þannig að henni er nú allri komið fyrir á einum stað. Markmiðið er að þetta ágæta fólk verði fullir þátttakendur og sjálfbjarga í samfélaginu, eins og hv. þm. Helgi Hjörvar nefndi hér áðan.
Ég hef verið svo heppin að hafa kynnst og stundað nám um tíma með mjög sjónskertum einstaklingi, sem virkilega lagði sig fram um að gera allt sem í hennar valdi stóð í tiltölulega erfiðu námi. Hún þurfti að leggja mjög mikið á sig, þannig að ég fagna því mjög að verið sé að auðvelda fólki með þessa fötlun að verða fullgildir þátttakendur í öllu því sem samfélag okkar býður upp á.
Eitt af því sem kom fram í umfjöllun nefndarinnar og ég held að sé ástæða til að nefna sérstaklega er mikilvægi þess að þjónustan verði aðgengileg alls staðar á landinu, að sveitarfélögin geti gert þjónustusamninga við þessa þjónustu- og þekkingarmiðstöð og fólk verði ekki dregið í dilka eftir póstnúmerum, ég tel það mjög mikilvægt.
Ég vil segja að lokum að — vegna þess hvernig þetta mál er til komið og vegna undirbúningshópsins, sem stóð að því að búa þessa þjónustu- og þekkingarmiðstöð til og gera lögin að veruleika — það var sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu mikil ánægja var í nefndinni með vinnubrögðin og ég tel að ríkisstjórnin öll og jafnvel virðulegt Alþingi líka mættu taka sér þessi vinnubrögð til fyrirmyndar og held að þá væri nú heldur skemmtilegra að lifa hér en raun ber vitni dag frá degi. En ég ætla ekki að vera neikvæð í umræðu minni um þetta mál en fagna framkomu þess.