136. löggjafarþing — 62. fundur,  18. des. 2008.

afbrigði um dagskrármál.

[18:27]
Horfa

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Forseti er þessar stundirnar, sem líða mjög hratt, að fara yfir öll þau mörgu mál sem eru hér til meðferðar í þinginu. Sum hafa ekki komið til 1. umr., önnur eru til vinnslu í nefndum og forseti mun í samráði við formenn þingflokka fara yfir þau mál öll og leita leiða til að þingið geti fengið þau til meðferðar.