lífeyrisréttindi þingmanna og ráðherra -- endurskoðun laga um stjórn fiskveiða.
Herra forseti. Það er auðvitað mikil þörf á því að ræða eftirlaunamál og launamál alþingismanna en ég ætlaði aðeins að tala um annað mál sem snýr að mannréttindum. Þá ætlaði ég að beina spjótum mínum að hv. þingmanni eða þingkonu Arnbjörgu Sveinsdóttur, sem er formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar. (Gripið fram í: Ég er þingmaður og er ...) Fyrirgefðu, hv. þingmaður, að ég skyldi móðga þig með þessum hætti en málið snýst um það að hv. þm. Arnbjörg Sveinsdóttir er formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar og hún er líka formaður þingflokks sjálfstæðismanna. Ég spyr hana því hvað þeirri vinnu líði að endurskoða fiskveiðistefnuna með tilliti til mannréttindabrota sem hafa verið framkvæmd á sjómönnum á Íslandi og hvað sé í deiglunni með það.
Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna skilaði fyrir ári síðan frá sér áliti og staðfesti að hér er verið að brjóta mannréttindi á sjómönnum og að breyta þurfi fiskveiðistjórnarkerfinu í grundvallaratriðum. Það er ekki hægt að úthluta fáum útvöldum veiðiheimildum, það er ekki hægt að leyfa þeim að braska með kvótann. Síðast en ekki síst lagði mannréttindanefndin það til að reynt verði að semja við þá sjómenn sem fóru fyrir mannréttindanefnd með sín mál, um bætur fyrir brot sem á þeim voru framin.
Þess vegna óska ég eftir því að heyra hvað er í gangi. Mér finnst heilt ár allt of langur tími, að menn þurfi að bíða í heilt ár eftir að eitthvað sé gert.