lífeyrisréttindi þingmanna og ráðherra -- endurskoðun laga um stjórn fiskveiða.
Hæstv. forseti. Við höfum nú nokkuð rætt þetta álit mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna hér á Alþingi. Málið er enn þá í ferli það ég best veit því að íslensk stjórnvöld hafa sent mannréttindanefndinni greinargerð um það álit sem mannréttindanefndin lét frá sér fara. Mannréttindanefndin hefur óskað eftir því að íslensk stjórnvöld fari yfir athugasemdir sem komu frá kærendum málsins upphaflega sem hefur nú verið sent til íslenskra stjórnvalda. Ég held því að fyrir janúarlok muni íslensk stjórnvöld senda greinargerð varðandi þær athugasemdir sem kærendur sendu til mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.
Málið er því statt þar í ferlinu, hv. þingmaður, og ég held að við verðum að bíða og sjá lyktir þess, hvernig mannréttindanefndin bregst á endanum við kæru, greinargerðum og athugasemdum sem þar fara í gegnum nefndina.