136. löggjafarþing — 63. fundur,  19. des. 2008.

lífeyrisréttindi þingmanna og ráðherra -- endurskoðun laga um stjórn fiskveiða.

[11:07]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Herra forseti. Ég ætla að koma inn á málið um lífeyrisréttindin og vildi andmæla því sem hv. þm. Siv Friðleifsdóttir sagði um það að þingmenn væru ríkisstarfsmenn. Frá upphafi Alþingis, frá stofnun Alþingis, hafa þingmenn verið fulltrúar, þeir eru kosnir en ekki hluti af framkvæmdarvaldinu.

Varðandi lífeyrisréttindin og auglýsingu BSRB eru þrenns konar lífeyrisréttindi fyrir ríkisstarfsmenn. B-deildin, þar sem eru mestu forréttindin og hefur hún kostað skattgreiðendur óhemju fé, A-deildin, sem er með föst réttindi og breytilegt iðgjald sem ríkið, þ.e. skattgreiðendur, borgar og venjulegir lífeyrissjóðir, en í þeim eru aðallega umönnunarstéttirnar sem eru með lægstu launin hjá ríkinu. Þar eru réttindin miklu síðri en hjá öðrum opinberum starfsmönnum og réttindin eru ekki föst, þau eru skert ef eignirnar duga ekki til, ef sjóðurinn verður fyrir áföllum. Það er náttúrlega ekki fært. (Gripið fram í.)

Það sem ég ætlaði líka að koma inn á er að þegar stéttarfélög breyta sér í pólitíska flokka og fara að taka tillit til pólitískra málefna, meira að segja opinber stéttarfélög sem opinberir starfsmenn eru skyldaðir með lögum til að greiða til. Fólk sem er með aðrar skoðanir en hv. þm. Ögmundur Jónasson er skyldað til að borga í stéttarfélagið sitt með lögum frá Alþingi. Það getur verið á öndverðri skoðun við hv. þm. Ögmund Jónasson en hann kemur fram í pólitískum málum í þeirra nafni og með þeirra peningum og heldur fram ákveðnum pólitískum markmiðum. Mér finnst þetta algjörlega ófært. Stéttarfélög eiga að vinna að því að bæta kjör starfsmanna sinna en ekki blanda sér í pólitíska umræðu eins og t.d. hvort það séu forréttindi að vera í lífeyrissjóði þingmanna.

Auk þess hef ég lagt til að þingmenn geti valið sér lífeyrissjóð að eigin vali úti um allt þjóðfélagið, hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna o.s.frv., (Forseti hringir.) og fengið uppbót á launum sem nemur mismuni á réttindunum.