136. löggjafarþing — 63. fundur,  19. des. 2008.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

243. mál
[15:15]
Horfa

Árni Þór Sigurðsson (Vg):

Frú forseti. Hér er til umræðu frumvarp ríkisstjórnarinnar til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum og það hefur verið farið býsna víða um völl. Þegar þessi umræða hófst í morgun söknuðum við þess mörg að það vantaði fulltrúa ríkisstjórnarflokkanna til þátttöku í umræðunni og til að svara spurningum sem brenna á okkur mörgum og kölluðum eftir viðveru þeirra. Það hefur verið ráðin bót á því að vissu marki og ég vil sérstaklega fagna því að hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur séð sér fært að vera viðstaddur umræðuna eftir að óskað var eftir því vegna þess að hluti af þeim ráðstöfunum sem hér eru til umfjöllunar varða landbúnaðinn og bændastéttina. Það er því mikilvægt að hæstv. landbúnaðarráðherra sé viðstaddur þessa umræðu og geti tekið þátt í henni og svarað þeim spurningum sem brenna á þingmönnum hvað það snertir.

Ég sakna þess vissulega að ekki skuli fleiri ráðherrar taka þátt í umræðunni. Ég nefni sérstaklega hæstv. heilbrigðisráðherra, hæstv. fjármálaráðherra og hæstv. forsætisráðherra sem mælti fyrir frumvarpinu.

Ég ætla að koma inn á nokkur atriði sérstaklega en þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs hafa nú þegar komið inn á allmörg mál. Sum þeirra eru stór í sniðum og eru okkur mörgum mjög hugleikin og ýmsum öðrum atriðum skiptum við með okkur að fjalla um eins og gefur að skilja.

Ég vil fyrst segja að það liggur auðvitað alveg ljóst fyrir að ríkisfjármálin eru öll í mikilli óvissu. Um það þarf út af fyrir sig ekki að vera neinn sérstakur ágreiningur og það er kannski eðlilegt við þær aðstæður sem eru uppi í samfélaginu núna að óvissa ríki um marga þætti fjárlagafrumvarpsins og þróun efnahagsmála. Við höfum hins vegar gagnrýnt að það skuli vera ásetningur stjórnvalda að afgreiða það fjárlagafrumvarp sem hér liggur fyrir miðað við þann skort á bakgrunnsupplýsingum sem við búum við. Það vantar mjög mikið af grundvallarupplýsingum um það hver þróun mála verður á næstunni. Það vantar upplýsingar um greiðslubyrði af lánum sem við erum að taka vegna skuldbindinga á erlendri grundu o.s.frv.

Við teljum að það hefði verið eðlilegra að afgreiða hér sérstakt frumvarp um greiðsluheimild úr ríkissjóði eins og dæmi eru um í stjórnmálasögunni þó að það sé ekki endilega mjög heppilegt. En það er auðvitað heldur ekki gott að afgreiða fjárlagafrumvarp sem við vitum að fær ekki staðist og verður að taka til endurskoðunar mjög fljótlega aftur.

Mér er kunnugt um að í einstökum sveitarfélögum, t.d. í Reykjavíkurborg, gera menn sér fyllilega grein fyrir þessu, líka sjálfstæðismenn, og hafa þess vegna ákveðið eftir því sem ég best veit að afgreiða fjárhagsáætlun sína í byrjun janúar og jafnframt ákveðið að hún verði endurskoðuð á mánaðarfresti vegna þess að mönnum er ljóst að forsendur hennar munu taka verulegum breytingum. Ég held að skynsamlegra væri að standa þannig að málum hér við afgreiðslu fjárlaganna.

Þar hafa líka verið ástunduð þau vinnubrögð að hafa samráð allra stjórnmálaflokka hvort sem þeir skipa meiri hluta eða minni hluta til að freista þess að ná sem mestri og breiðastri samstöðu í stjórnmálunum um þær aðgerðir sem gripið er til til þess að sjónarmið allra stjórnmálaflokka komi fram og þeir geti mæst með sín ólíku sjónarmið og viðhorf til heilla fyrir samfélagið. Ég átel að ríkisstjórnin hafi ítrekað slegið á útrétta hönd stjórnarandstöðunnar í átt til samráðs og samstarfs um þann geigvænlega vanda sem við glímum við um þessar mundir.

Ríkisstjórnin segir oft og iðulega að við séum öll á sama báti, til að mynda hefur hæstv. forsætisráðherra sagt þetta oftar en einu sinni. Já, við erum út af fyrir sig öll á sama báti. En hvernig stendur þá á því að á sama tíma og þetta er ítrekað skuli þeir sem standa í brúnni ekki vilja fá alla sem eru á þessum sama báti til liðs við sig til þess að halda fleyinu á floti? Hverju sætir það að ríkisstjórnin freistar þess ekki að ná samstöðu og samstarfi og gefa þau skýru skilaboð út í samfélagið að við ætlumst til þess að allir leggi eitthvað af mörkum, að allir leggi eitthvað á sig? En þá verður líka að vera vilji til þess að hlusta á þau ráð og þau sjónarmið sem eru úti í samfélaginu.

Það á ekki að loka á samstarf, hvorki við stjórnarandstöðuna eins og ríkisstjórnin hefur gert, né hagsmunaaðila og samtök út um allt samfélagið. Ég nefni verkalýðshreyfinguna sem bersýnilega hefur fengið sig fullsadda á vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar og gefur það skýrt til kynna í viðtölum eftir fundi með ríkisstjórninni, í auglýsingum o.s.frv. Ég nefni samtök eins og aldraðra og öryrkja sem hafa gagnrýnt þær aðgerðir sem ríkisstjórnin er að ráðast í og ég nefni Bændasamtökin sem sömuleiðis gagnrýna það sem ríkisstjórnin er að aðhafast. Síðan koma talsmenn ríkisstjórnarinnar og segja: Já, en við lentum nú bara í þessum vanda, eins og hv. þm. Pétur Blöndal segir. Við bara lentum í þessu og verðum að taka á því. (PHB: Var ekki bankahrun?) Var ekki bankahrun? Jú, það var bankahrun. En hvers vegna kom það til og hverjir bera ábyrgð á því og hver er ábyrgð ríkisstjórnarinnar sjálfrar á því? Hv. þm. Pétur Blöndal sagði að enginn hefði séð það fyrir. Það sagði ekki nokkur maður að von væri á þessu. Hér hefur um margra mánaða eða jafnvel missiraskeið verið talað um hvert stefndi í efnahagsmálum. Kannski ekki sagt að það yrði bankahrun en að það væru mjög válegir tíma fram undan. Og stjórnvöld og stjórnarliðar skelltu skollaeyrum við því af því að þeir tóku þátt í þessu brambolti öllu saman (Gripið fram í.) og fannst það bara gott.

Hvers vegna eru afleiðingarnar hér miklu meiri en annars staðar? Það er vegna þess að undirstöðurnar voru feysknar. Það er vegna þess að menn höfðu ekki gætt að sér, ekki gætt hófs. Hv. þm. Árni Páll Árnason sem hér kallar úr Samfylkingunni var að sjálfsögðu í því liði sem á síðasta kjörtímabili varaði einmitt við en um leið og Samfylkingin var komin í ríkisstjórn þá þögnuðu þær raddir í röðum Samfylkingarinnar. (Gripið fram í: Þetta er staðan núna …)

Þetta er staðan núna og það sem ég er að leggja áherslu á í þessari umræðu er að sumt af þessu mátti sjá fyrir og sumt af þessu eru afleiðingar af þeirri stjórnarstefnu sem hefur verið rekin hér á landi um margra ára skeið. Og það er hún sem hefur brugðist. Aðgerðaleysið eða rangar ákvarðanir í hagstjórninni á undanförnum árum og þá er að sjálfsögðu ekki rétti tíminn til þess að láta þá sömu stefnu, þá sömu einstaklinga og þá sömu flokka halda áfram á þeirri braut sem þeir hafa stefnt okkur í. Það er ekki rétt að gera það.

Það er að minnsta kosti lágmark að stjórnvöld reyni að efna til víðtæks samstarfs og samráðs í samfélaginu um það til hvaða aðgerða eigi að grípa til þess að koma okkur úr þeirri stöðu sem við erum í. Og það hefur ekki verið gert eins og ég hef þegar bent á.

Ég ætla að nefna Bændasamtökin sérstaklega og búvörusamninginn og ákvörðun ríkisstjórnarinnar í tengslum við hann. Bændasamtökin hafa mótmælt þessari aðgerð. Hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir: Það verða allir að leggja sitt af mörkum, bændur eins og aðrir og gera það með þessum hætti.

Hér er á ferðinni brot á samningum og ríkisstjórnin lætur ekki svo lítið að ræða við samningsaðila um hvort hægt sé að gera breytingar á samningunum sem báðir aðilar felli sig við. Hið sama á auðvitað við um málefni aldraðra og öryrkja. Það er ekki farið í þá vinnu. Hér eru teknar einhliða ákvarðanir og Bændasamtökin hafa í áliti sínu eða umsögn sinni til þingsins látið frá sér fara ályktun og minnisblað lögmanns samtakanna þar sem færð eru rök fyrir því að hér sé verið að brjóta þá samninga sem liggja fyrir. Það eru auðvitað tilteknar aðferðir til samkvæmt samningnum til að taka upp efni hans. En menn ákváðu að fara ekki í þær aðgerðir eða í samræmi við það.

Það er sem sagt verið að taka úr sambandi með lögum ákvæði í þessum samningum. Þetta er nú sú stétt, leyfi ég mér að fullyrða, sem hefur á undanförnum mánuðum og missirum þurft að taka á sig gríðarlegar kostnaðarhækkanir í aðföngum hjá sér, gríðarlegar. Og ég trúi því ekki að því sé mótmælt. Á sama tíma vitum við að afkoman í þessari grein, sérstaklega í tilteknum þáttum hennar eins og sauðfjárræktinni, er mjög bágborin. Það er því ekki á bændastéttina leggjandi, ég segi það fullum fetum, að taka á sig þá skerðingu sem hér um ræðir.

Hv. þm. Álfheiður Ingadóttir hefur vakið máls á því að ríkisstjórnin hafi fundið leið til þess frysta verðtrygginguna en lætur það síðan ekki ganga á skuldbindingarnar hinum megin. Þetta er það sama og gerðist hér á níunda áratugnum þegar til varð misgengishópurinn, þegar vísitala launa var tekin úr sambandi en vísitalan á skuldbindingunum hélt áfram. Við vitum hvaða afleiðingar það hafði. Hér er í raun og veru verið að fara sömu leið.

Þess vegna höfum við verið að velta fyrir okkur hvort ekki sé hægt að nota sömu aðferð á verðtryggð húsnæðislán, fasteignaverðtryggð húsnæðislán. Við, fjórir þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, höfum því lagt fram frumvarp í þá veru, sem hefur verið dreift, sem gengur einmitt út á það að frysta að hluta til hækkun vísitölunnar með sama hætti og ríkisstjórnin leggur til í frumvarpinu um ráðstafanir í ríkisfjármálum og með sama rökstuðningi og þar er beitt. Meðal annars með vísan til eignarréttarákvæða stjórnarskrárinnar því það er ljóst að það eru leiðir sem hægt er að fara í þessu efni.

Í 1. umr. um þetta mál sagði ég að mér fyndist vera skömm að því fyrir hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að leggja fram og standa að þeim tillögum sem hér eru lagðar fram varðandi bændastéttina. Ég stend við það, mér finnst það. En þótt vissulega sé hægt að finna dæmi um að þeim sé hlíft sem verst eru settir, t.d. tekjulægstu bótaþegunum í lífeyriskerfinu sem er virðingarvert og ég ætla ekki að draga úr því, þá eru engu að síður líka hópar sem verða fyrir verulegum áföllum eins og fram hefur komið í þessari umræðu.

Það sem er kannski hvað grætilegast í þessu er að um leið og við segjum að auðvitað verði allir að taka á í þessu efni — það verða allir fyrir tekjutapi, það verða allir fyrir kaupmáttarrýrnun, fólk missir vinnuna eða verður fyrir launalækkun, fólk verður fyrir verulegri hækkun á skuldbindingum sínum vegna verðbólgunnar og getur ekki staðið í skilum því allir hafa sínar skuldbindingar fastar engu að síður, með fjölskyldur og börn og fólk stendur frammi fyrir miklum vanda — þá er í raun ekki verið að taka á þessum vanda. Og það er alls ekki verið að beina spjótum að þeim sem kannski fyrst og fremst bera ábyrgð á því hvernig komið er. Það er ekkert verið að gera í því að reyna að frysta eigur þeirra einstaklinga sem hafa farið svona með samfélag okkar. Það er ekkert verið að gera í því. Það finnst mér vera stóralvarlegt mál.

Við vitum það öll að það er fámennur hópur sem stundum eru kallaðir auðmenn, það er fámennur hópur einstaklinga í samfélaginu sem hefur leikið sér með fjöregg þjóðarinnar. Þess vegna er komið eins og komið er. Andvaraleysi stjórnvalda á þátt í því að hafa látið þetta allt viðgangast. Ríkisstjórnin á auðvitað að bera ábyrgð á því þó að hún reyni að víkja sér undan og benda á alla aðra.

Ég vil líka í þessu samhengi taka hér upp málefni sveitarfélaganna. Í þessu frumvarpi er lögð til hækkun á útsvari um 0,25% og ég vil taka það skýrt fram að ég geri ekki ágreining um þá aðgerð. Við höfum margoft talað um vanda sveitarfélaganna hér og einkum og sér í lagi þegar kreppir að með þeim hætti sem núna gerir að þá mun mæða mjög mikið á sveitarfélögunum. Þau verða fyrir miklu tekjutapi í lækkuðu útsvari og þau verða fyrir miklum útgjaldaauka í formi aukinnar fjárhagsaðstoðar sveitarfélaganna og aukinna útgjalda í skólum og leikskólum og frístundastarfi til að koma til móts við versnandi afkomu heimilanna. Þess vegna höfum við talað um mikilvægi þess að bæta hag sveitarfélaganna.

Við í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði höfum almennt verið þeirrar skoðunar að þá sé betra að hér sé um að ræða almenna útsvarshækkun en að sveitarfélögin neyðist til þess að hækka þjónustugjöldin hjá sér. Að því leyti til erum við ekki ósammála þessari hækkun og eins og kemur fram í umsögn samgöngunefndar um þetta frumvarp þá skrifaði ég undir það álit nefndarinnar hvað þetta atriði snertir. En með þeim fyrirvara að ég geri hins vegar athugasemd við það hvernig farið er að því að bæta Jöfnunarsjóði sveitarfélaga þá skerðingu sem jöfnunarsjóðurinn átti að taka á sig samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2009 þar sem sérstöku framlagi upp á 1.400 millj. kr. sem skyldi ráðstafað til þeirra sveitarfélaga sem verst voru sett var kippt út, framlagi sem er algerlega lífsnauðsynlegt fyrir sveitarfélög vítt og breitt um landið. Víða eru tekjur sveitarfélaganna um 30–40% og allt upp í 50% af heildartekjum sveitarfélaga og þess vegna algerlega fráleitt að kippa þessu úr sambandi.

Það sem hér er gert er hins vegar að ríkið heldur sig við þessa skerðingu en hækkar síðan tekjuskattsprósentuna um 0,25% til þess að geta að hluta til mætt þessu framlagi. En að hluta til til þess að greiða fasteignaskatt ríkisins af opinberum byggingum til sveitarfélaganna sem ríkið ætlaði og tók einhliða ákvörðun um að lækka prósentuna algerlega án þess að fyrir því væru nokkur málefnaleg rök. Þar var líka um að ræða samning milli ríkis og sveitarfélaga um það mál. Það var ekki gerður neinn nýr samningur eða breytingar á þeim samningi í samvinnu við sveitarfélögin. Þetta er enn eitt dæmið um að ríkisstjórnin ræðir ekki við þá aðila sem málið varðar. Hún tekur sínar einhliða ákvarðanir án þess að ráðgast við aðra. Þetta er auðvitað vísasta leið til þess að um þessi mál verði djúpstæður ágreiningur. Djúpstæður ágreiningur sem ríkisstjórnin hefði hæglega getað komið í veg fyrir ef hún hefði unnið þetta mál á mannsæmandi hátt. Ef hún hefði unnið þetta í samráði og í samstarfi við þá aðila sem málið varðar og ef hún hefði haft dug til þess að hafa stjórnarandstöðuna með sér í liði.

Í umræðunni um ráðstafanir í ríkisfjármálum um fjárlagafrumvarp og fjáraukalög höfum við í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði, frú forseti, lýst hugmyndum okkar sem munu kannski koma betur fram í umræðunni á eftir. En við höfum bæði verið með hugmyndir um tekjuöflun þar sem við höfum lagt áherslu á þrepaskiptan tekjuskatt eins og ég gat um hér í andsvari við hv. þm. Jón Magnússon áðan, við höfum verið með hugmyndir um breytingar á fjármagnstekjuskatti þannig að meiri jöfnuður kæmi fram í honum og við höfum sömuleiðis verið með hugmyndir um að það mætti grípa til sparnaðaraðgerða á öðrum sviðum en ríkisstjórnin er að leggja hér upp með. Þær hugmyndir hafa komið fram nú þegar í þessari umræðu og verða kynntar betur í dag.

Við teljum sem sagt að aðgerðir okkar liggi algerlega fyrir því þó að hugsanlega verði örlítið meiri halli á ríkissjóði heldur en hér er lagt upp með þá sé það innan skekkjumarka miðað við þann mikla halla sem þrátt fyrir allt verður og við viðurkennum að sjálfsögðu að er óhjákvæmilegur. En það er líka mikilvægt að þær aðgerðir sem farið er í verði ekki til þess að magna vandann. Að magna vandann, auka atvinnuleysið og hægja enn frekar á hjólum atvinnulífsins því þá lendum við inn í hringrás sem er ekki víst að við getum stöðvað auðveldlega. Það er auðvitað ekki góð leið heldur því þá mun atvinnuleysið aukast, tekjusamdrátturinn verða enn meiri og afkoma fjölskyldna og fyrirtækja í landinu enn verri en ella. Hér þarf því auðvitað að gæta að jafnvægi og ég tel að við höfum sýnt (Forseti hringir.) fram á það og gert það með málflutningi okkar. En eins og ég segi, virðulegi forseti, það er mjög margt um þetta mál að segja og við eigum eftir að koma hér upp aftur í þessu (Forseti hringir.) máli til að ræða fleiri hliðar þess.