ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Frú forseti. Að sjálfsögðu er gríðarlega mikilvægt að gengið komist á eitthvert eðlilegt og raunhæft ról. Erlendar skuldir lækka þá og greiðslubyrði af slíkum lánum léttist. Vandinn með verðtryggðu lánin er hins vegar sá að það eru afar litlar líkur á því að verðbólguhækkun sem verður á höfuðstól lána á tímum mikillar verðbólgu gangi nokkurn tíma til baka. Til þess þarf verðhjöðnun og hún er ekki alveg fyrirsjáanleg.
Þess vegna er það ákaflega mikið umhugsunarefni, sérstaklega ef við trúum því að það verði svipað með verðbólguna og gengið, að þetta verði kúfur í stuttan tíma, hvort ekki er hægt að taka eitthvað ofan af honum. Það er mjög freistandi hugsun þó að ég viðurkenni alveg að hún er erfið í útfærslu. Ef gengið er langt í þeim efnum færast þar til miklir fjármunir. En ætti það ekki að vera til skoðunar sem sameiginlegt verkefni ríkisins, Íbúðalánasjóðs og lífeyrissjóðanna t.d. hvort þeir geti á einhvern hátt deilt með sér byrðunum af því að hjálpa fólki með því að höggva einhvern verðbólgukúf ofan af en ekki bara bjóða upp á að færa hann aftur fyrir sem leiðir að endingu til þess að fólk hefur borgað enn þá meira þegar upp verður staðið, ef það getur það nokkurn tíma. Það vita allir hvað í því felst að lengja lánin.
Um búvörusamninginn og stöðu landbúnaðarins vil ég aðeins segja það að ég er ekki bara að hugsa um kjör bænda í núinu þó að það sé gríðarlega mikilvægt heldur líka mikilvægi greinarinnar og þá verðmætasköpun sem hún stendur fyrir og gæti gert í auknum mæli ef henni verða búin skilyrði til þess. Nú lofa allir og prísa að við skulum eiga íslenskan landbúnað og íslenskan matvælaiðnað og að krötunum tókst ekki að eyðileggja það. Maður hittir varla nokkurn mann sem ekki fagnar því og gleðst yfir því. Framleiðsla landbúnaðarins selst sem aldrei fyrr og þar eru möguleikar til aukinnar framleiðslu, aukinnar verðmætasköpunar til að framleiða (Forseti hringir.) meira hráefni inn í matvælaiðnað o.s.frv. (Gripið fram í.) Það er akkúrat það sem við þurfum á að halda, hæstv. landbúnaðarráðherra. (Forseti hringir.) Þess vegna verðum við að passa okkur á því að valda ekki meira tjóni en því sem við erum að leysa með ráðstöfunum af þessu tagi.