136. löggjafarþing — 63. fundur,  19. des. 2008.

kolvetnisstarfsemi.

152. mál
[23:41]
Horfa

Frsm. meiri hluta iðnn. (Katrín Júlíusdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það sem við lendum í þegar við erum að ræða þetta mál, um olíuleit á Drekasvæði sem er alls ekki nálægt einu sinni netlögum sem um hefur verið rætt hér, þá lendum við í því að upp kemur gamall draugur, þ.e. deila á milli sveitarfélaga og ríkisins um hversu langt lögsaga sveitarfélaganna og skipulagslögsaga sveitarfélaganna á að ná.

Þessi draugur hefur komið upp líka í öðrum málum, til dæmis í málefnum sem varða fiskeldi sem hafa komið upp hjá sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd og það er þess vegna sem við leggjum mjög mikla áherslu á það í okkar umsögn og í okkar nefndaráliti að sú deila verði leyst.

Við í hv. iðnaðarnefnd getum ekki leyst þá deilu vegna þess að hún snertir svo marga aðra fleti. Við leysum hana ekki í umfjöllun um Drekasvæðið sem er svo miklu lengra í burtu. Þess vegna leggjum við mikla áherslu á að það mál verði leyst.

Þess vegna ákváðum við líka að samþykkja og koma til móts við Samband íslenskra sveitarfélaga að því leyti að komi til einhverra slíkra þátta að kolvetnisstarfsemin verði innan þess svæðis, einnar sjómílu utan netlaga, áður en þessi deila verður leyst þá er það vilji okkar að leitað verði umsagnar viðeigandi sveitarfélags.

Við töluðum við Samband íslenskra sveitarfélaga og það gerði ég persónulega og þeir lýstu ánægju með þó þessa niðurstöðu. En það er alveg ljóst að þessa deilu verður að leysa með heildrænum hætti. Það gerum við ekki í hv. iðnaðarnefnd né heldur við hv. þm. Árni Þór Sigurðsson sem sitjum í umhverfisnefnd. Við í umhverfisnefnd leysum hana ekki. Hana verður að leysa heildrænt.