kolvetnisstarfsemi.
Virðulegi forseti. Það er ekkert skrýtið að menn séu orðnir örlítið ringlaðir á þessum tíma nætur. Varðandi tímasetningar liggja þær allar fyrir á netinu, hvenær hvað var lagt fram og hvernig.
Ég fékk tölvupóst frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga 24. nóvember sl. þar sem það lagði fram sína fyrstu gagnrýni um málið. Þá var það orðið formlega lagt fyrir af þinginu. Og ég nenni ekki að fara í einhverjar deilur við hv. þingmann um það.
Hins vegar er alveg rétt hjá henni að auðvitað á að vanda sig og auðvitað á þingið að vanda sig. Auðvitað á ráðuneytið að vanda sig. Og að mínu mati gekk það núna vel upp, nákvæmlega eins og það á að gera. Við fengum ekki nógu vel unnið frumvarp frá iðnaðarráðuneytinu sem unnið var af því og umhverfisráðuneytinu. Þess vegna erum við með 15 breytingartillögur við málið sem hv. þingmaður er búinn að viðurkenna að gera málið enn betra.
Að mínu mati skiptir gríðarlega miklu máli að við getum hafið þessar rannsóknir sem fyrst. Það er langt inn í framtíðina sem við vitum hvað kemur út úr rannsóknunum. En við hljótum að geta sammælst um að búa hér til löggjöf — og þurfum ekki marga mánuði í það atriði — sem heimilar okkur og heimilar framkvæmdarvaldinu að bjóða út rannsóknir á svæðinu og með öllum þeim fyrirvörum sem lagðir eru fram í breytingartillögum okkar í hv. meiri hluta iðnaðarnefndar.
Ég spyr hv. þingmann sem vill allan þennan tíma til viðbótar til að ræða málið umfram þennan heila mánuð sem við erum búin að hafa: Hvað vantar, virðulegi forseti? Ég hlýt að spyrja hv. þingmann um það: Hvað vantar annað en að hún (Forseti hringir.) var óánægð með nafnið á frumvarpinu? Hvað vantar? Og varðandi nafnið er ég sammála henni. En það er bara (Forseti hringir.) aukaatriði málsins, við getum tekið þá umræðu síðar enda kemur hún rannsóknum á þessu svæði ekki nokkurn skapaðan hlut við. Ég er viss um að við eigum eftir að taka þann hluta (Forseti hringir.) upp síðar.