fjárlög 2009.
Frú forseti. Það eru vond fjárlög sem gera ráð fyrir því að halli verði 153 eða 160 milljarðar og jafnvel verður enn þá meiri halli á þessum fjárlögum þegar upp verður staðið. Þá er spurningin með kökuna sem við höfum. Er hægt að stækka kökuna eða horfum við fram á að þurfi að minnka hana svona mikið? Hvað er hægt að gera? Við þurfum að skera niður víða og sums staðar finnst mér of lítið gert í niðurskurði í þessum fjárlögum en á öðrum stöðum finnst mér of mikið skorið niður. Auðvitað eru skiptar skoðanir á milli þingmanna, á milli ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu um það og það verður alltaf þannig.
Í mínu kjördæmi er sá þáttur sem snýr að samgöngum við Vestmannaeyjar ótrúlegur. Þar er ekki gert ráð fyrir að fá nýtt skip til að bæta samgöngur. Slegið var af borðinu að gera smíðasamning um nýja ferju sem siglir á milli lands og Eyja og óvíst er hvernig gengur með hafnarmannvirki í Bakkafjöru. Þótt til séu peningar í það verkefni núna er óljóst hvað þeir munu endast. Það vekur líka furðu mína þegar verið er að ræða fjárlagafrumvarpið að Vestmannaeyingar og þeir sem tengjast Vestmannaeyjum hafa ekki látið til sín taka í þessum málaflokki. En þeir eiga svo sannarlega skilið að fá bættar samgöngur til eyjanna og við horfum upp á að flug á milli Vestmannaeyja og Bakkafjöru er lagt af yfir vetrartímann þannig að Vestmannaeyingar eiga ekki gott með að komast frá eyjunum. Því til viðbótar er aðalsamgöngutækið, gamli Herjólfur, nánast ónýtt. Hann er stöðugt bilaður og miklar tafir verða þess vegna. Ýmislegt varðandi hann er orðið dálítið ískyggilegt, meðal annars var hann á reki um daginn, vélarvana í tæpan klukkutíma, og það er auðvitað ekki boðlegt fólki að þurfa að búa við þannig samgöngur á Norður-Atlantshafi. Ég vildi aðeins koma inn á þennan þátt sem mér finnst skipta verulegu máli fyrir Vestmannaeyinga og bendi á þetta atriði. Þarna er verið að skera niður.
Síðan er auðvitað niðurskurður á sjúkrastofnunum, niðurskurður til aldraðra og öryrkja, sem er sorglegt, og á skurðdeildum í Sjúkrahúsi Keflavíkur. Almennt er verið að skera allt of mikið niður í heilbrigðisþjónustunni að mínu mati, að ekki sé minnst á lögreglu og toll. Þar er verið að skera niður nánast alls staðar og mun það bitna mjög á þeirri þjónustu sem við veitum en gerum ekki nægilega vel þegar svona árar.
Á sama tíma erum við að fella niður skuldir af fyrirtækjum. Við fellum niður skuldir af útgerðarmönnum hvað varðar framleiðslu gjaldeyrissamninga. Við fellum þar niður eða búum til samkomulag um ákveðið gengi sem er ekkert annað en niðurfelling á skuldum. Það er sorglegt fyrir utan það að það eru ákveðnir gæðingar, jafnvel gamlir útrásarvíkingar, sem búa til samkomulag um að þeir fái að halda fyrirtækjum sínum áfram. Við látum lífeyrissjóðina búa til björgunarsjóð og sú hætta er fyrir hendi að hann verði notaður sem bjargráð við fyrirtæki sem komin eru í gjaldþrot eða svo gott sem. En við í Frjálslynda flokknum höfum lagt til kvótaaukningu í flestum tegundum sem við teljum að gæti orðið til þess að taka stærsta höggið af þjóðinni. Með því að veiða 190 þús. tonn af þorski í viðbót og bæta við í öðrum tegundum gætum við búið til útflutningsverðmæti upp á kannski 60–100 milljarða í tekjur. Þetta er valkostur sem við höfum og við eigum að nýta hann. Það mundi draga verulega úr atvinnuleysi sem yfirvofandi er og auka gjaldeyrisöflun þjóðarinnar. Við gætum flutt út jafnvel fyrir 100 milljarða í viðbót, bara í tengslum við sjávarútveginn.
Við þurfum að virkja fallvötnin og við þurfum að tryggja fjármagn í að orkuveitur og að Landsvirkjun fái aðgang að fjármagni til að geta haldið áfram að virkja. Það er forsenda fyrir því að byggja upp álver, netþjónabú og annað sem við sækjumst eftir og er á teikniborðinu. Það mun skapa mikla atvinnu, bæði við uppbyggingu og í rekstri. Það er forgangsverkefni að mínu mati að reyna að tryggja að þetta haldi áfram. Það mun hafa þau áhrif að byggingarverktakar og aðrir sem eru í þeim greinum atvinnulífsins sem standa hvað verst í dag fengju meiri vinnu. Við mundum hleypa lífi inn í þá atvinnugrein sem stendur einna verst núna. Auðvitað þurfum við á álverum og netþjónabúum að halda, þau skapa mikla atvinnu og tekjur. Við megum ekki hætta að láta hjólin snúast og við verðum að gera allt sem við getum til þess að stuðla að því að atvinnulífið lognist ekki út af eins og jafnvel hætta er á.
Það eru miklir möguleikar í ferðamannaiðnaði og það er sjálfsagt að við reynum að styðja við hann eins og hægt er því að þar búum við líka til gjaldeyristekjur.
Að síðustu vil ég minna á sveitarfélögin. Á þau verða settar auknar byrðar núna og sveitarfélögin þurfa að taka á sig meiri samfélagsþjónustu en áður. Ég hef sagt það áður í þinginu að ég telji að sveitarfélögin eigi t.d. að vera með ókeypis máltíðir í öllum barnaskólum landsins. Ég hefði talið að það væri gott innlegg í þessi mál og þá þarf að tryggja það með auknu fjármagni frá ríki til sveitarfélaga, gera þeim kleift að gera þetta. Í því fælist ákveðið öryggi fyrir börn og fjölskyldur að þurfa ekki að borga sérstaklega fyrir þessa þjónustu. Ef við miðum við svokallaða finnska leið sem farin var í kreppunni í Finnlandi fyrir 18–20 árum síðan var það þetta sem hélt lífi í mörgum fjölskyldum, þ.e. að börnin fengu frían og ókeypis mat í skólum.
En hér er stiklað á stóru og komið niður á nokkur atriði sem mér finnst að þurfi að skoða og ég þarf ekki að þylja upp það sem aðrir hafa sagt á undan. En að búa til fjárlög með 150 milljarða halla sem verða kannski 250 milljarðar í halla þegar upp verður staðið, kostar peninga. Einhvers staðar verður að brúa það bil með einhverjum hætti og það kostar þjóðarbúið vexti, skapar kostnað og rýrir lífskjör almennings í landinu til framtíðar litið. Þess vegna er nauðsynlegt að menn horfi í alvöru á þær leiðir og þá möguleika sem við höfum að búa til auknar tekjur. Það er það sem við eigum að leggja höfuðáherslu á og reyna svo að skipta þessari köku sem við höfum með sanngjarnari og réttari hætti en við höfum gert, hugsa um fólkið sem verst stendur, fjölskyldurnar í landinu sem búa við þær hörmungar að missa húsnæði sitt.
Á sama tíma gerum við einhverja vildarkjarasamninga við atvinnurekendur, hjálpum þeim að búa til einhverjar gengiskörfur sérstaklega sem snúa að gjaldeyrissamningum gagnvart sjávarútveginum. Þar er verið að búa til ákveðið gengi sem þessar skuldir verða settar á. Það er í rauninni ekkert annað en niðurgreiðsla og ríkisstyrkur. Það er er komið nóg af því. Ríkisstyrkur í sjávarútvegi er búinn að vera við lýði í 24 ár. Útgerðarmönnum var afhentur fiskurinn ókeypis. Þeir gátu leigt hann, veðsett hann og selt hann dýrum dómum og það er stærsti ríkisstyrkur Íslandssögunnar. Svo eru menn stundum að tala um að verið sé að styrkja íslenskan landbúnað. Það er mjög lítið miðað við það sem er gert í íslenskum sjávarútvegi.
Mér finnst allt of lítið hafa verið talað í gegnum tíðina um hvað núverandi handhafar fiskveiðiheimilda, sægreifarnir, hafa fengið í ríkisstyrki gegnum tíðina. Enn stendur til að leyfa þeim að halda því áfram þrátt fyrir að þeir séu yfirskuldsettir. En við erum ekki að hugsa um fjölskyldurnar sem eru að missa húsnæðið sitt. Við erum ekki að hugsa um öryrkja eða aldraða eða þá sem þurfa að nota heilbrigðisþjónustuna, sjúkrahúsin okkar og annað slíkt. Það er allt í lagi að skera það niður en ekki þau sérréttindi og þann ríkisstyrk sem útgerðarmenn eru með í dag.