fjáraukalög 2008.
Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir þessi viðbótarsvör. Ég tel að það sé orðið nokkuð ljóst að þessi mál eru í ákveðnu ferli og skýringin á því að menn hafa ekki tekið á þeim núna sé einfaldlega sú að það ferli er ekki nægilega langt fram gengið. En ég vænti þess að þau verk stoppist ekki það sem eftir er af þessu ári og verði kláruð mjög fljótlega á næsta ári.
Vonandi má vel við það una sem út úr því kemur og ég trúi því ekki og hef enga ástæðu til að ætla að hæstv. menntamálaráðherra muni skilja þessa stofnun eftir í þeim vanda að hún sé ekki vel rekstrarhæf á næsta ári, ég tek orð hennar þannig.
Hæstv. forseti. Ég vil aðeins í lokin minna á það að eins og vinnulagið hefur verið við gerð fjáraukalaganna og fjárlaganna þá er það auðvitað þannig að minni hlutinn og stjórnarandstaðan hefur ákaflega lítið getað komið inn í þau verk í heild sinni vegna þess að þar hefur verið mikill hraði á. Í raun og veru hefur verið tekið við tillögum ríkisstjórnar sem meiri hlutinn hefur einnig beðið eftir og þeim haskað hér í hvelli eða mjög fljótlega inn í Alþingi.
Þetta hefur auðvitað gert það að verkum að þegar kemur til afgreiðslu þessara mála þá munum við líta þannig á að það sé ríkisstjórnin sem beri ábyrgð á þeim og að meiri hlutinn sé að fylgja eftir fororði og skipunum ríkisstjórnarinnar. Þannig hefur það auðvitað verið í reynd að menn eru að hamast við að koma hér inn tillögum ríkisstjórnarinnar til afgreiðslu og meðferðar og þess vegna erum við að þessu núna, daginn fyrir Þorláksmessu.
Vonandi verður ekki mikil handvömm eða mistök í þessari flýtivinnu en ég vænti þess að menn séu sammála um að taka til verka snemma á næsta ári við að yfirfara fjárlögin því ég held að það muni ekki af veita, hæstv. forseti.