136. löggjafarþing — 73. fundur,  4. feb. 2009.

stjórnarskipti og kosningar.

[13:39]
Horfa

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Áður en gengið er til dagskrár vil ég bjóða ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur velkomna til starfa og óska ráðherrum velfarnaðar í mikilvægum störfum. Ég vona að þeir eigi gott samstarf við Alþingi. Jafnframt þakka ég ráðherrum í ríkisstjórn Geirs Haarde fyrir samstarfið og óska þeim alls hins besta. Héðan frá Alþingi sendum við Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, góðar kveðjur.

Mikil umskipti hafa nú orðið í íslenskum stjórnmálum. Ríkisstjórn sem naut stuðnings meira en tveggja þriðju hluta þingmanna hefur sagt af sér og við tekur minnihlutastjórn tveggja flokka. Alþingiskosningar verða í vetrarlok. Ríkisstjórnir koma og fara, það er hluti af lýðræðinu og þeirri stjórnskipan sem við búum við í landinu og kosningar verða eigi síðar en á fjögurra ára fresti, en Alþingi stendur hvað sem á dynur.

Ég verð að viðurkenna fyrir þingheimi héðan úr stól forseta Alþingis, að ég hef verið mjög hugsi yfir atburðum síðustu vikna við Alþingishúsið og er sannarlega ekki einn um það. Veggir þinghússins hafa verið útbíaðir, rúður brotnar í tugatali og ruðst hefur verið inn í það með ofbeldi. Í stjórnarskránni segir að eigi megi raska friði Alþingis né frelsi. Þess vegna hljótum við að harma þessa atburði. Við höfum mótað okkur leikreglur í samfélaginu á löngum tíma. Þeim má vissulega breyta en menn verða að fara með friði, annars er voðinn vís. Ég vona í lengstu lög að atburðirnir við Alþingishúsið að undanförnu boði ekki nýja siði í íslenskum stjórnmálum. Alþingi er hornsteinn íslenskrar stjórnskipunar. Þangað velur íslenska þjóðin sína fulltrúa. Stöndum vörð um Alþingi.

Mér hefur borist bréf frá meiri hluta alþingismanna þar sem farið er fram á, skv. 6. gr. þingskapa, að kosinn verði á ný forseti Alþingis, varaforsetar og fastanefndir þingsins. Í bréfinu er þess jafnframt farið á leit að fundur verði á Alþingi í dag kl. 13.30 þar sem áðurgreindar kosningar verði teknar á dagskrá. Beiðni þingmanna er samkvæmt þingsköpum, frá meiri hluta þingmanna eins og þar er áskilið, 34 þingmenn auk eins varamanns, og er því gild. Ég hef þess vegna boðað til þessa fundar með þeirri dagskrá sem fyrir liggur og lög gera ráð fyrir.