umræða um stefnu ríkisstjórnarinnar.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir þessi svör. Ég tel að þetta skipti máli fyrir okkur í umræðunni í kvöld. Ég átta mig á því að í mörg horn er að líta hjá ríkisstjórninni en mikilvægt er að við getum rætt málin eins vel og hægt er og til þess þurfum við að sjá þann málflutning sem ríkisstjórnin hyggst beita sér fyrir hér í þingsölum.
Ég fagna því enn og aftur og vil ítreka að við viljum eiga gott samstarf við ríkisstjórnina, þessa minnihlutastjórn. Það þýðir að við viljum styðja þau góðu mál sem koma fram en munum líka beita okkur af festu og hörku gegn því sem við teljum að sé ekki í hag lands og þjóðar. Ég held að verkefnið sem við stöndum frammi fyrir, hvort sem við erum í minni hluta eða meiri hluta, sé það sama og auðvitað mun reyna mjög á þá sérstöku stöðu í þinginu að hér starfar nú minnihlutastjórn.