stefna ríkisstjórnarinnar, skýrsla forsrh.
Hæstv. forseti. Góðir Íslendingar. Við Íslendingar stöndum nú frammi fyrir vanda af stærðargráðu sem óþekkt er í sögu landsins okkar. Það reynir á hagsæld fjölskyldunnar, rekstrargrundvöll fyrirtækja og efnahag þjóðarinnar. Því skiptir öllu að á tímum sem þessum starfi samhent ríkisstjórn sem hafi þor og dug og vilja til að takast á við þau erfiðu og stundum sársaukafullu verkefni sem fram undan eru. Ég vil því óska nýrri ríkisstjórn velfarnaðar í störfum sínum og verkum komandi vikur og mánuði. Þung er byrði væntinganna og ég vona að ríkisstjórnin, nú nýsest, haldi vel á spöðunum landi og þjóð okkar til heilla.
Sjálfstæðisflokkurinn og þingmenn hans munu að sjálfsögðu styðja nýja ríkisstjórn til góðra verka er styrkja atvinnu- og efnahagslíf landsins okkar. Við munum í krafti umboðs kjósenda flokksins ekki aðeins veita ríkisstjórn málefnalegt aðhald, heldur bjóða í fyrsta skipti í langan tíma upp á sterka og samstiga stjórnarandstöðu. Til marks um samstarfsvilja okkar og metnað til verka hér á þingi hefur þingflokkur Sjálfstæðisflokksins nú þegar lagt fram tvö frumvörp sem við teljum mikilvægt að nái fram að ganga. Annars vegar er frumvarp um skuldaaðlögun, aðlögun sem inniheldur brýn úrræði fyrir þá sem lenda í greiðsluerfiðleikum, og hins vegar frumvarp um aðgang einstaklinga að séreignarsparnaði sínum til greiðslu skulda. Frumvarp þetta gæti létt mjög á skuldugum einstaklingum og heimilum í landinu. Bæði þessi mál voru tilbúin áður en ríkisstjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar lauk og raunar hafði frumvarpið um skuldaaðlögun legið um nokkurt skeið í þingflokki Samfylkingar og beðið afgreiðslu.
Góðir landsmenn. Grundvöllur þess endurreisnarstarfs sem fram undan er liggur í samstarfi okkar við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þetta samstarf og sú áætlun sem það er byggt á er lykilforsenda þess að á landinu skapist nauðsynleg tiltrú og forsenda þess að landið njóti alþjóðlegs stuðnings við það uppbyggingarstarf sem fram undan er. Íslensk stjórnvöld unnu í samræmi við sérfræðinga Alþjóðagjaldeyrissjóðsins efnahagsáætlun til tveggja ára sem gengur í aðalatriðum út á þrennt, að styrkja gengi krónunnar, endurreisa bankakerfið og ná tökum á rekstri ríkissjóðs.
Það var því ánægjulegt að sjá að í verkefnaskrá ríkisstjórnarinnar nýju var kveðið á um áframhaldandi fylgni við fyrirliggjandi stefnu. Hins vegar vekur upp óvissu allt tal annars stjórnarflokksins, Vinstri grænna, um að endurskoða eigi áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sérstaklega í ljósi einstrengingslegrar afstöðu þeirra gagnvart sjóðnum í gegnum tíðina og óvissa er akkúrat ekki það sem við þurfum núna á að halda.
Einnig verður fróðlegt að sjá hvernig ríkisstjórnarforkólfunum muni ganga að komast að niðurstöðu um aukinn niðurskurð á ríkisfjármálunum þar sem helsta baráttumál annars flokksins og stundum beggja hefur verið að auka þau en ekki minnka. Við skulum segja þetta skýrt: Það er halli á ríkisfjármálunum, og hvernig ætlar ríkisstjórnin að taka á þeim halla? Hvernig geta ötulustu talsmenn aukinna útgjalda, flokkur og flokkar sem fundu niðurskurði fyrri ríkisstjórnar allt til foráttu, nú fundið leið til að draga úr halla ríkissjóðs? Það er bara eitt í boði og það er að hækka skatta, það er að stórhækka skatta. Við slíkt mun ríkisstjórnin ekki finna fyrir veika stjórnarandstöðu. Sjálfstæðisflokkurinn getur ekki stutt við það að velta stórauknum byrðum yfir á heimili landsins enda sýnir reynslan okkur að þegar vinstri menn tala um breytingu á skattkerfinu þýðir það á mannamáli hærri álögur á meðaljóninn og -gunnuna og meiri jaðarskatta, það er bara þannig.
Góðir Íslendingar. Á föstudaginn verða fjórir mánuðir liðnir frá því að Alþingi samþykkti neyðarlögin svokölluðu. Fjórir mánuðir eru ekki langur tími í stóra samhenginu en hann hefur verið lengi að líða og verið mörgum mjög erfiður. Engu að síður voru fjölmargar stórar ákvarðanir leiddar til lykta á þessum tíma og við höfum náð því að koma okkur í skjól fyrir frekari efnahagslegum skakkaföllum í bili. Auðvitað voru mistök gerð, bæði í aðdraganda bankahrunsins og eftir það, það verður að segjast hreint út, annað væri óeðlilegt í þeim sviptivindum sem störfin voru unnin. Sjálfstæðisflokkurinn dregur enga dul á þetta og það er líka ljóst og hefur verið sagt áður að upplýsingagjöf um störf ríkisstjórnarinnar hefði mátt vera skilvirkari og samræðan við þjóðina okkar betri. Slíkt hefði skapað traust og minnkað tortryggni. Um það getum við engum kennt nema sjálfum okkur. Þó mun sagan sýna að á þessum fyrstu dögum og vikum eftir hrunið voru unnin þrekvirki og orsökuðu þau að hér fór ekki mun verr.
Hvað á að gerast næst ef rétt er á málum haldið? Verðbólga mun ganga hratt niður og við sjáum raunar skýr merki nú þegar á verðbólgumælingunni fyrir janúarmánuð að hækkunin milli mánaða er sú minnsta í langan tíma. Minni verðbólga þýðir lægri afborganir af húsnæðislánum og minni hækkanir á verðlagi. Þetta er kjarabót sem allir skilja. Minni verðbólga þýðir líka að vextir eiga að geta lækkað. Vaxtalækkun er sú vítamínsprauta sem fyrirtækin á Íslandi þurfa nauðsynlega á að halda en það liggur fyrir að við hefðum getað fengið þessa vítamínsprautu í síðustu viku ef ekki hefði komið til stjórnarkreppa.
Unnið hefur verið hörðum höndum að því innan bankanna að ganga frá verðmati á eignum bankanna og skilja endanlega á milli gömlu og nýju bankanna. Nú þegar liggja fyrir tillögur og mikil vinna sem getur orðið til þess að bankakerfið okkar fari að funkera og þeim þarf að fylgja eftir. Það er lykilatriði svo óvissan minnki og traust skapist þannig að fyrirtækin geti skipulagt sig í núinu og til framtíðar.
Góðir Íslendingar. Í dag eru yfir 13.000 manns á atvinnuleysisskrá á Íslandi. Þetta eru hrikalegar tölur og allt verður gert til þess að þær verði einungis tímabundnar. Atvinnuleysi má ekki skjóta hér rótum. Ekkert böl leggst af meiri þunga á þjóðarsál og þrek en þannig ástand. Við Íslendingar getum staðið af okkur ýmis áföll en við getum ekki og megum ekki sætta okkur við að hér skapist það ástand til langframa að vinnufúsar hendur fái ekki verkefni við hæfi. Ég trúi ekki öðru en að ný ríkisstjórn leggi allt sitt á vogarskálarnar til að koma í veg fyrir að slíkt ástand myndist og mun hún njóta fulltingis Sjálfstæðisflokksins til slíkra verka.
Af þessum sökum hljóta fyrstu skref nýju stjórnarinnar í atvinnuuppbyggingu að vekja furðu. Þegar allt er undir einkennast vinnubrögðin af gerólíkum áherslum og skoðunum flokkanna þriggja sem að stjórninni standa. Nýr umhverfisráðherra var ekki búin að vera hálfan sólarhring í starfi þegar hún lýsti því yfir að ríkisstjórnin hefði ákveðið að hætta við álver á Bakka og slá þau áform varanlega út af borðinu. Iðnaðarráðherra hljóp þá til með sína skoðun og leiðrétti umhverfisráðherrann og sagði að ekkert hefði verið ákveðið um álver á Bakka. (Gripið fram í.) Síðan var þriðja og fjórða skoðunin, þær skoðanir eru innan Samfylkingarinnar en hin fimmta kom síðan frá Framsóknarflokknum, varaformanni Framsóknarflokksins sem lýsti því yfir að hann mundi aldrei styðja ríkisstjórn sem legði svo mikið sem stein í götu þess að álver yrði reist á Bakka. Og ég fagna því.
Sömu söguna er að segja um hvalveiðar í atvinnuskyni sem talið er að geti skapað 200 ný störf hér á landi. Stjórninni virðist ómögulegt að komast að niðurstöðu í þessu máli og væri forvitnilegt að heyra hvað hæstv. sjávarútvegsráðherrann hefur að segja við þá tæplega þúsund manns sem er á atvinnuleysisskrá í Norðvesturkjördæmi en allir þessir ráðherrar eru jú í boði Framsóknar.
Fleira virðist vera sem stjórnin á erfitt með að tala um. Um mikilvægasta hagsmunamál samtíðarinnar að mati Samfylkingar, Evrópumálin, má ekki ræða, rétt impra á þeim. Reyndar skrifaði einn þingmaður Samfylkingarinnar í dag í blað að ríkisstjórnin væri þráðbeint á leið í Evrópusambandið. Ætli fjármálaráðherrann viti af því eða samdi fjármálaráðherrann af sér við ríkisstjórnarborðið?
Hin nýja ríkisstjórn fær þrjá mánuði til að sýna úr hverju hún er gerð, sem er sami tíminn og Samfylkingin gaf fráfarandi ríkisstjórn eftir hrunið. Það dugir því ekki fyrir stjórnina að tala um tímaþröng, erfiðar aðstæður og ólíkar áherslur flokkanna fram að kosningum. Þjóðin okkar þarf á svörum og lausnum að halda og það strax, það er allt tilbúið.
Góðir Íslendingar. Eitt mál vil ég nefna sérstaklega hér að lokum, það er stjórnarskráin okkar og fyrirhugaðar breytingar á henni. Ég hef talað fyrir því eins og margir fleiri í þessum sal að gera verði breytingar á ýmsum þáttum stjórnarskrárinnar, breytingar sem lúta fyrst og fremst að því að efla þingið og styrkja stöðu þess gagnvart framkvæmdarvaldinu en líka hugmyndum um þjóðaratkvæðagreiðslur og jafnvel ákvæði sem kveða nánar á um framsal fullveldis til yfirþjóðlegra stofnana. Stjórnarskráin er það skjal og sá vettvangur í okkar stjórnskipan sem verður að umgangast af virðingu. Það er fyrir því rakin ástæða, erfitt er að breyta henni í dag. Endurskoðun á henni má ekki ráðast af offorsi eða hvatvísi. Stjórnarskráin geymir grundvallarreglur þjóðfélags okkar og þau mannréttindi sem við öll njótum. Hún á að vera yfir það hafin að breytast í takt við tískubylgjur eða dægurþras.
Þær breytingar sem orðið hafa á stjórnarskránni undanfarin ár hafa þannig byggst á vandaðri vinnu og þverpólitískri sátt á þinginu. Slíkt vinnulag er forsenda þess að stjórnarskráin okkar njóti þess trausts og hafi þann sess sem hún á skilið. Við sjálfstæðismenn lýsum okkur tilbúna til vinnu við endurskoðun stjórnarskrárinnar að því gefnu að vandað verði til verka og leitað verði samráðs um þær breytingar sem til greina koma, ekki bara á lokastigi eins og nú er verið að boða. Það er nýlunda.
Góðir landsmenn. Í þeirri uppbyggingu sem fram undan er þurfum við að vera trú og rækta þau gildi sem hér hafa þróast um aldir. Fyrir hvað stöndum við sem þjóð, og hvaða gildum viljum við sem þjóð halda á lofti? Þótt fyrstu dagar nýju ríkisstjórnarinnar lofi ekki góðu, hafi frekar sýnt fram á sundrungu og erfiðleika, er brýnt að þessari nýju ríkisstjórn takist vel til næstu daga og vikur. Við erum vel menntuð þjóð, við erum dugleg og áræðin, við erum bjartsýn, stolt og pínulítið þrjósk. Um leið og við verðum að læra af reynslunni skulum við nýta okkur þessa eiginleika þjóðarinnar og skapa hér að nýju öflugt og heilbrigt samfélag sem við getum búið við stolt og hamingjusöm í frjálsu landi. Sjálfstæðisflokkurinn mun leggja allt sitt á vogarskálarnar til að svo megi verða. — Góðar stundir.