136. löggjafarþing — 74. fundur,  4. feb. 2009.

stefna ríkisstjórnarinnar, skýrsla forsrh.

[21:28]
Horfa

Kristinn H. Gunnarsson (Fl):

Virðulegi forseti og góðir tilheyrendur. Því verður ekki á móti mælt að íslenskt þjóðfélag hefur ratað í miklar ógöngur. Risavaxin vandamál blasa við eftir hrun helstu fjármálafyrirtækja landsins. Þau eru tilkomin vegna græðgi, ófyrirleitni og hömluleysis sem fékk að viðgangast öllum til tjóns. Menn héldu í alvöru að endalaust væri hægt að kaupa íbúðir á háu verði og taka allt að láni. Verðið mundi halda áfram að hækka og allt yrði í lagi. Menn héldu að hægt væri að kaupa hlutabréf á metverði og taka lán fyrir kaupunum. Verðið á þeim gæti bara hækkað og hagnaðurinn væri öruggur. Menn héldu að hægt væri að halda uppi lífskjörum með fölsku gengi á krónunni. Útvaldir bankamenn héldu að hægt væri að slá lán hjá sparifjáreigendum um allan heim og ekki þyrfti að skila peningunum.

En þetta var auðvitað ekki hægt. Nú er komið að skuldadögunum og það kostar lakari lífskjör um skeið. Því miður bitnar ástandið á mörgum sem síst skyldi. Ævintýramennskan í fjármálafyrirtækjunum skilur eftir sig þungar klyfjar sem ekki verður umflúið að greiða. En við getum gert það. Þrátt fyrir allt verða skuldir okkar ekki meiri en sumra ríkja í Evrópu. Þrátt fyrir allt verða lífskjörin góð í alþjóðlegum samanburði. Þrátt fyrir allt verður hér menntakerfi og heilbrigðiskerfi í fremstu röð í heiminum. Landsmenn hafa alla burði til þess að vinna sig út úr vandanum. Þeir hafa áður tekist á við efnahagsleg áföll og unnið bug á þeim á undraskömmum tíma.

Virðulegi forseti. Forgangsverkefni stjórnvalda er að vinna bug á atvinnuleysinu. Auðlindir til lands og sjávar eru miklar og þær á að nýta. Nú þýðir ekki að láta fordóma koma í veg fyrir nýtingu fiski- og hvalastofna eða virkjun vatnsorku og jarðvarma. Landbúnaður er mikilvægur og ekki á að vega að honum með því að draga úr sjúkdómavörnum heldur á að standa vörð um störf í framleiðslu og úrvinnslu. Við þurfum störf fyrir vinnufúsar hendur.

Það á að ráðast í frekari álversuppbyggingu ef kostur er á. Því hefur verið borið við að ekki eigi að auka hlut álframleiðslu. Því er til að svara að hlutur þorskveiða er stór í íslenskum sjávarútvegi. Á þess vegna að leggjast gegn aukinni þorskveiði? Svarið er nei. Milljarðarnir sem aukin veiði gefur af sér koma sér vel fyrir þjóðarbúið og það sama mun gilda um auknar tekjur af álframleiðslu eða annarri stóriðju.

Við núverandi aðstæður á að leggja ofuráherslu á uppbyggingu innviða þjóðfélagsins með framkvæmdum í samgöngumannvirkjum og framförum í fjarskiptum um land allt. Sú fjárfesting mun skila sér fljótt í öflugra atvinnulífi og fleiri störfum og verða til þess að landsmenn komast fyrr upp úr öldudalnum en ella. Víða um land eru brýn verkefni á þessu sviði en ég vil minna sérstaklega á jarðganga- og vegagerð á sunnanverðum Vestfjörðum sem ekki má tefjast frekar en orðið er. Ég vil fagna þeim áfanga sem þegar hefur verið náð með útboði á hluta af þessum vegarkafla.

Ég vænti þess að núverandi ríkisstjórn láti ekki hvarfla að sér að leggja af Reykjavíkurflugvöll. Öll áform um slíkt eru aðför að landsbyggðinni. Sjálfstæði þjóðarinnar og fullt forræði yfir auðlindum landsins og eigin málum mun reynast okkur mikill kostur sem fyrr. Við eigum að kappkosta að eyða ekki um efni fram og nýta þau úrræði sem felast í sjálfstæðri efnahagsstjórn.

Ýmsir halda því fram að best sé að fela erlendum aðilum að ráða fram úr málum okkar að meira eða minna leyti. Það heitir að deila fullveldi okkar með öðrum þjóðum. Svona tal minnir mig á dæmisöguna um músina og fílinn sem áttust við í kappleik. Þau deildu saman leikvellinum og spiluðu eftir sömu leikreglum og áttu því að standa jafnt að vígi. En það fyrirsjáanlega gerðist að fíllinn einfaldlega steig ofan á músina þegar honum hentaði. Þannig verður leikurinn í Evrópusambandinu. Við verðum í hlutverki músarinnar og þegar stóru ríkin vilja fara sínu fram þá gera þau það. Evrópusambandið mun breytast og yfirtaka æ fleiri svið fullveldisins eftir því sem tímar líða hvað sem okkur finnst um það. Heilladrýgst verður okkur Íslendingum að halda fast um fullt sjálfstæði þjóðarinnar.

Góðir áheyrendur. Við skulum draga þann lærdóm af nýorðnum atburðum að láta af takmarkalausri trú á gróðann og græðgina. Að láta af umburðarlyndinu gagnvart ósvífninni og ófyrirleitninni. Ekki er eðlilegt að beita hvaða ráðum sem er til að græða. Það er heldur ekki eðlilegt að hafa engar hömlur á gróðafíkninni. Nú þarf að breyta um hugarfar og huga aftur meira að hófsemi, sparsemi, jafnræði og sanngirni. Á þann veg getum við skapað frið og sátt í íslensku samfélagi. — Ég þakka þeim sem hlýddu. Góðar stundir.