Varnarmálastofnun og loftrýmiseftirlit.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni kærlega fyrir þær árnaðaróskir til nýrrar ríkisstjórnar sem ég veit að hann ber fram af einlægni og góðum hug.
Hv. þm. Sigurður Kári Kristjánsson hlær að þessu. Það kann að vera að hann viti eitthvað meira um innri gerð hugar hv. þm. Jóns Gunnarssonar en ég. (Gripið fram í.) Ég hef hins vegar ekki reynt hv. þingmann að öðru en því að vilja vel.
Í morgun voru hér umræður um sinnaskipti þingmanna. Ég veit ekki hvort spurningin ber í sér sinnaskipti hv. þm. Jóns Gunnarssonar vegna þess að ég man ekki betur en hann hafi stutt bæði Varnarmálastofnunina og loftrýmiseftirlitið með atkvæði í fjárlögum.
Ég dyl ekki að ég hef haft efasemdir um hvernig málum Varnarmálastofnunar er skipað. Ég hef verið þeirrar skoðunar að skoða eigi hvort hægt sé að koma þeim fyrir með öðrum hætti og spara þannig fé. Sérstök nefnd var starfandi í utanríkisráðuneytinu þegar ég tók þar við þar sem ýmsar stofnanir koma að málum. Ég tel ekki tímabært að gefa út af minni hálfu neinar yfirlýsingar um stefnubreytingu í þessum efnum. Ég er hins vegar að skoða þessa dagana hvort rétt sé að taka málið úr þeim farvegi sem það er nú í og velta upp öðrum möguleikum til að komast að niðurstöðu í málinu.
Að því er varðar loftrýmiseftirlitið, svo ég svari nú spurningunni sem snýr að Dönum, þá eru engar breytingar fyrirhugaðar á komu Dana hingað í næsta mánuði. Það hef ég sagt áður opinberlega. Ég vona að þetta svari spurningunni sem hv. þingmaður beindi til mín.